Nach Genre filtern

Gímaldið

Gímaldið

Gímaldið

Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/

103 - Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps
0:00 / 0:00
1x
  • 103 - Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps

    Demókratar stýra senn báðum deildum Bandaríkjaþings eftir sigur í þingkosningunum 3. nóvember. Sigurinn var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Eyrún Magnúsdóttirræðir við Karen Kjartansdótturum niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.


    Meðal þess sem rætt er um:

    Bláa bylgjan: Af hverju vanmátu kannanir sigur demókrata og hvers vegna skiluðu kjósendur repúblikana sér illa á kjörstað?Abdul El-Sayed, nýr öldungadeildarþingmaður Michigan og fyrsti múslíminn í öldungadeildinni, og baráttumál hans: „Money out of politics, money into your pocket, Medicare for all“James Talarico, sem sigraði Ken Paxton í Texas þrátt fyrir milljónir Elons MuskPeningar í pólitík og hvers vegna þeir dugðu ekki í þetta sinnRannsóknarvald þingsins, embættismissismál og neitunarvald forsetans: Hvað geta demókratar raunverulega gert?Innbyrðis átök milli vinstri arms Demókrataflokksins og flokksforystunnarStríðið í Íran og hvort það skýri ósigur repúblikanaFramtíð MAGA-hreyfingarinnar og hverjum repúblikanar kenna umMöguleg forsetaefni fyrir 2028: Jon Ossoff, J.D. Vance, Marco Rubio, og hvers vegna Zohran Mamdani getur ekki orðið forsetiHvaða áhrif niðurstöðurnar gætu haft á Evrópu og Ísland

    Viðmælandi: Karen Kjartansdóttir
    Innslag: Aðalheiður Ámundadóttir
    Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir


    Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi á gimaldid.is/askrift eða lagt til frjálst framlag.

    Thu, 05 Nov 2026
  • 102 - Demókratarnir sem geta breytt öllu

    Þingkosningar standa fyrir dyrum í Bandaríkjunum. Úrslit þeirra munu ráða miklu um valdsvið Donalds Trump á síðari hluta kjörtímabils hans. Stríðsrekstur forsetans og tollastefna hefur komið verst niður í fylkjum sem venjulega styðja Repúblikana og í mörgum þeirra ríkir nú mikil spenna. Líklegt er talið að Demókratar gætu náð yfirhöndinni í báðum deildum Bandaríkjaþings. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Aðalheiði Ámundadóttur um þýðingu kosninganna, hvað brennur helst á kjósendum og í hvaða fylkjum baráttan um öldungadeildina gæti ráðist.

    Óvinsælir ráðherrar gætu átt embættismissi yfir höfði sér vinni demókratar meirihluta í þinginu.Tapi Repúblikanar þinginu gæti áhersla forsetans á utanríkismál stóraukist.Hækkað verð á olíu og áburði bítur í helstu vígjum Repúblikana og gagnaver eru orðin kosningamál.Demókrati sem tapaði forkosningum í Michigan lýsir stuðningi við Repúblikana.Hófsemdarframbjóðandinn Jon Ossoff slær í gegn og er orðaður við forsetaframboð eftir óvænt flug í Georgíu.Forsetinn gagnrýnir útlit og klæðaburð eigin frambjóðanda í Texas en dáist að líkamsvexti flokksbróður síns í Ohio.Læknir sem stóð í málaferlum við 700 sjúklinga mætir presti í Kansas.Tveir Dan Sullivan eru á kjörseðlinum í Alaska.Systir Lindsey Graham berst fyrir sæti bróður síns í Suður-Karólínu.Norður-Karólína er líklegust til að falla til Demókrata.

    Fjallað er um kosningabaráttuna og hvað er í húfi í tveimur greinum á vef Gímaldsins. 

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.

    Mon, 02 Nov 2026
  • 101 - Fjölmiðill verður ekki til úr engu

    Gímaldið er eins árs. Á þessum tíma hafa komið út 100 hlaðvarpsþættir, mörg hundruð greinar og bókarkaflar, og nú kemur fréttabréf alla virka morgna. Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir, Erla Hlynsdóttir og Helga Arnardóttir líta yfir fyrsta árið og ræða hvaða skref Gímaldið tekur næst.

    Í þættinum:

    Erla rifjar upp mál starfsmanns Útlendingastofnunar sem birti trúnaðarupplýsingar um umsækjendur um vernd á Instagram, og fjallar um au pair-kerfið og frumvarp dómsmálaráðherra.Helga segir frá umfjöllun sinni um matarverð og verðtryggð lán og hvað er fram undan í neytendamálum, meðal annars samkeppni í eldsneytissölu.Aðalheiður ræðir krísu hefðbundinna stjórnmálaflokka á Íslandi og í Evrópu og hvað kom henni mest á óvart á árinu.Eyrún ræðir um hægfréttir, mikilvægi áskrifta fyrir fjölmiðla og eitrað samband fjölmiðla og samfélagsmiðla.

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.

    Fri, 30 Oct 2026
  • 100 - Andri Snær: Hjartsláttartruflanir af völdum náttúruverndar

    Andri Snær Magnason hefur ekkert alltaf ætlað sér að bera kyndilinn í náttúruvernd en með bókum sínum Draumalandið og Um tímann og vatnið og samnefndum heimildarmyndum í kjölfarið hefur hann orðið einn af áhrifamestu kyndilberum í þessum málaflokki og vakið fólk um allan heim til vitundar um náttúruvernd, loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra fyrir náttúru og samfélög.

    Ekki síst hefur hann verið öflugur sagnamaður, sett hlutina í samhengi með persónulegri nálgun og miðlað óskiljanlegum niðurstöðum rannsókna vísindasamfélagsins á aðgengilegan hátt sem snúa að loftslagsbreytingum, súrnun sjávar og afleiðingum þess. Þrátt fyrir þessa velgengi hefur ekkert verið auðvelt að standa undir þessu. Andri hefur sætt hörðum árásum úr mörgum áttum, það hefur markvisst verið gert lítið úr hans vinnu og hann hefur átt í vök að verjast á köflum. Hann segist sjálfur eiga í ást- og haturssambandi við að vera þessi talsmaður náttúrunnar og fengið hjartsláttartruflanir af álagi sem því hefur fylgt. Auk þess upplifir hann sterkt að sumt fólk skilur hreinlega ekki og gæti ekki staðið meira á sama um loftslagsbreytingar, súrnun sjávar og bráðnun jökla og áttar sig ekki á hvaða raunverulegu afleiðingar það hefur. Hann upplifði líka hálfgerða kulnun, sem enginn vissi hvað var fyrir tuttugu árum, eftir útgáfu Draumalandsins og hefur saknað Andra Snæs sem skrifaði ljóðrænar skáldsögur og barnabækur.

    Helga Arnardóttirræddi við Andra Snæ Magnason í hlaðvarpi Gímaldsins. Í viðtalinu ræðir hann um myndina Tímann og vatnið, um baráttuna fyrir náttúrunni og segir frá nýrri bók sem hann er með í smíðum og kemur út á næsta ári.   

    Bókin Um tímann og vatnið sem kom út árið 2019 hefur farið sigurför um heiminn og verið þýdd á 32 tungumál. Andri hlaut ítölsku verðlaunin Premio Tiziano Terzani árið  2021 fyrir bókina Um tímann og vatnið þar sem dómnefnd sagði verkið vera áhrifaríkt neyðarkall til heimsbyggðarinnar.Heimildarmyndin TIME and WATER í leikstjórn Íslandsvinarins Sara Dosa í samvinnu við National Geographic var frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni í janúar 2026.  Myndin er unnin upp úr bók Andra og umfangsmiklu fjölskyldumyndasafni sem hann hefur viðað að sér í gegnum árin frá afa sínum og ömmu sem voru jöklafarar og miklir náttúruunnendur. Í maí 2026 hlaut Andri Snær WWF-Póllandsverðlaunin - Rödd fyrir lifandi plánetu sem veitt voru fyrir þátttöku hans og hlutverk í heimildarmyndinni Um tímann og vatnið (National Geographic), en verðlaunin eru veitt aðalpersónu kvikmyndar sem hvetur aðra til aðgerða í þágu náttúrunnar. Í september 2026 fékk Andri Snær náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti á degi íslenskrar náttúru en verðlaunin eru veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar.   

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.

    Sat, 24 Oct 2026
  • 99 - Jón Gnarr, Dagur B. og frelsið í áhrifaleysinu

    Af hverju gat Jón Gnarr ekki verið áfram í þingflokki Viðreisnar og látið til sín taka sem óbreyttur þingmaður? Og hvað ætlar ríkisstjórnin sér með verðtryggðu lánin? Eyrún Magnúsdóttir, Helga Arnardóttir og Aðalheiður Ámundadóttirræða um Viðreisn og verðtrygginguna.

    Meðal efnis í þættinum:

    Jón Gnarr yfirgefur þingflokk Viðreisnar en ekki flokkinn. Er staða hans sambærileg við stöðu Dags B. Eggertssonar innan Samfylkingarinnar? Rýnt í hvernig þeir hafa spilað ólíkt úr sinni stöðu. Áform um að stytta hámarkslánstíma verðtryggðra fasteignalána í 25 ár eru komin í samráðsgátt.Bankastjórar þriggja stærstu bankanna vilja afnema verðtrygginguna. Af hverju gengur ríkisstjórnin ekki lengra?Hvaða áhrif hefur styttri lánstími á tekjulága fyrstu kaupendur?Lífeyrissjóður varar við: verðtryggð lán geti verið skynsamleg í hávaxtaumhverfi.Af hverju megum við ekki bera okkur saman við Færeyinga? Þar bjóðast 30 ára lán á 4,8% föstum vöxtum.Matarverð: Hagar hækka afkomuspá um 800 milljónir á sama tíma og verslanir frysta verð.Hvernig hefur þingmönnum farnast sem yfirgefa þingflokka sína á miðju kjörtímabili?Forystuleysi, veikindaleyfi og þingflokkur án formanns: hvað er að gerast innan Viðreisnar?

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.

    Tue, 20 Oct 2026
Weitere Folgen anzeigen