Podcasts by Category
Gímaldið

- 103 - Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps
Demókratar stýra senn báðum deildum Bandaríkjaþings eftir sigur í þingkosningunum 3. nóvember. Sigurinn var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Eyrún Magnúsdóttirræðir við Karen Kjartansdótturum niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.
Bláa bylgjan: Af hverju vanmátu kannanir sigur demókrata og hvers vegna skiluðu kjósendur repúblikana sér illa á kjörstað?Abdul El-Sayed, nýr öldungadeildarþingmaður Michigan og fyrsti múslíminn í öldungadeildinni, og baráttumál hans: „Money out of politics, money into your pocket, Medicare for all“James Talarico, sem sigraði Ken Paxton í Texas þrátt fyrir milljónir Elons MuskPeningar í pólitík og hvers vegna þeir dugðu ekki í þetta sinnRannsóknarvald þingsins, embættismissismál og neitunarvald forsetans: Hvað geta demókratar raunverulega gert?Innbyrðis átök milli vinstri arms Demókrataflokksins og flokksforystunnarStríðið í Íran og hvort það skýri ósigur repúblikanaFramtíð MAGA-hreyfingarinnar og hverjum repúblikanar kenna umMöguleg forsetaefni fyrir 2028: Jon Ossoff, J.D. Vance, Marco Rubio, og hvers vegna Zohran Mamdani getur ekki orðið forsetiHvaða áhrif niðurstöðurnar gætu haft á Evrópu og Ísland
Meðal þess sem rætt er um:Viðmælandi: Karen Kjartansdóttir
Innslag: Aðalheiður Ámundadóttir
Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir
Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi á gimaldid.is/askrift eða lagt til frjálst framlag.Thu, 05 Nov 2026 - 102 - Demókratarnir sem geta breytt öllu
Þingkosningar standa fyrir dyrum í Bandaríkjunum. Úrslit þeirra munu ráða miklu um valdsvið Donalds Trump á síðari hluta kjörtímabils hans. Stríðsrekstur forsetans og tollastefna hefur komið verst niður í fylkjum sem venjulega styðja Repúblikana og í mörgum þeirra ríkir nú mikil spenna. Líklegt er talið að Demókratar gætu náð yfirhöndinni í báðum deildum Bandaríkjaþings. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Aðalheiði Ámundadóttur um þýðingu kosninganna, hvað brennur helst á kjósendum og í hvaða fylkjum baráttan um öldungadeildina gæti ráðist.
Óvinsælir ráðherrar gætu átt embættismissi yfir höfði sér vinni demókratar meirihluta í þinginu.Tapi Repúblikanar þinginu gæti áhersla forsetans á utanríkismál stóraukist.Hækkað verð á olíu og áburði bítur í helstu vígjum Repúblikana og gagnaver eru orðin kosningamál.Demókrati sem tapaði forkosningum í Michigan lýsir stuðningi við Repúblikana.Hófsemdarframbjóðandinn Jon Ossoff slær í gegn og er orðaður við forsetaframboð eftir óvænt flug í Georgíu.Forsetinn gagnrýnir útlit og klæðaburð eigin frambjóðanda í Texas en dáist að líkamsvexti flokksbróður síns í Ohio.Læknir sem stóð í málaferlum við 700 sjúklinga mætir presti í Kansas.Tveir Dan Sullivan eru á kjörseðlinum í Alaska.Systir Lindsey Graham berst fyrir sæti bróður síns í Suður-Karólínu.Norður-Karólína er líklegust til að falla til Demókrata.Fjallað er um kosningabaráttuna og hvað er í húfi í tveimur greinum á vef Gímaldsins.
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Mon, 02 Nov 2026 - 101 - Fjölmiðill verður ekki til úr engu
Gímaldið er eins árs. Á þessum tíma hafa komið út 100 hlaðvarpsþættir, mörg hundruð greinar og bókarkaflar, og nú kemur fréttabréf alla virka morgna. Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir, Erla Hlynsdóttir og Helga Arnardóttir líta yfir fyrsta árið og ræða hvaða skref Gímaldið tekur næst.
Í þættinum:
Erla rifjar upp mál starfsmanns Útlendingastofnunar sem birti trúnaðarupplýsingar um umsækjendur um vernd á Instagram, og fjallar um au pair-kerfið og frumvarp dómsmálaráðherra.Helga segir frá umfjöllun sinni um matarverð og verðtryggð lán og hvað er fram undan í neytendamálum, meðal annars samkeppni í eldsneytissölu.Aðalheiður ræðir krísu hefðbundinna stjórnmálaflokka á Íslandi og í Evrópu og hvað kom henni mest á óvart á árinu.Eyrún ræðir um hægfréttir, mikilvægi áskrifta fyrir fjölmiðla og eitrað samband fjölmiðla og samfélagsmiðla.Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Fri, 30 Oct 2026 - 100 - Andri Snær: Hjartsláttartruflanir af völdum náttúruverndar
Andri Snær Magnason hefur ekkert alltaf ætlað sér að bera kyndilinn í náttúruvernd en með bókum sínum Draumalandið og Um tímann og vatnið og samnefndum heimildarmyndum í kjölfarið hefur hann orðið einn af áhrifamestu kyndilberum í þessum málaflokki og vakið fólk um allan heim til vitundar um náttúruvernd, loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra fyrir náttúru og samfélög.
Ekki síst hefur hann verið öflugur sagnamaður, sett hlutina í samhengi með persónulegri nálgun og miðlað óskiljanlegum niðurstöðum rannsókna vísindasamfélagsins á aðgengilegan hátt sem snúa að loftslagsbreytingum, súrnun sjávar og afleiðingum þess. Þrátt fyrir þessa velgengi hefur ekkert verið auðvelt að standa undir þessu. Andri hefur sætt hörðum árásum úr mörgum áttum, það hefur markvisst verið gert lítið úr hans vinnu og hann hefur átt í vök að verjast á köflum. Hann segist sjálfur eiga í ást- og haturssambandi við að vera þessi talsmaður náttúrunnar og fengið hjartsláttartruflanir af álagi sem því hefur fylgt. Auk þess upplifir hann sterkt að sumt fólk skilur hreinlega ekki og gæti ekki staðið meira á sama um loftslagsbreytingar, súrnun sjávar og bráðnun jökla og áttar sig ekki á hvaða raunverulegu afleiðingar það hefur. Hann upplifði líka hálfgerða kulnun, sem enginn vissi hvað var fyrir tuttugu árum, eftir útgáfu Draumalandsins og hefur saknað Andra Snæs sem skrifaði ljóðrænar skáldsögur og barnabækur.
Helga Arnardóttirræddi við Andra Snæ Magnason í hlaðvarpi Gímaldsins. Í viðtalinu ræðir hann um myndina Tímann og vatnið, um baráttuna fyrir náttúrunni og segir frá nýrri bók sem hann er með í smíðum og kemur út á næsta ári.
Bókin Um tímann og vatnið sem kom út árið 2019 hefur farið sigurför um heiminn og verið þýdd á 32 tungumál. Andri hlaut ítölsku verðlaunin Premio Tiziano Terzani árið 2021 fyrir bókina Um tímann og vatnið þar sem dómnefnd sagði verkið vera áhrifaríkt neyðarkall til heimsbyggðarinnar.Heimildarmyndin TIME and WATER í leikstjórn Íslandsvinarins Sara Dosa í samvinnu við National Geographic var frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni í janúar 2026. Myndin er unnin upp úr bók Andra og umfangsmiklu fjölskyldumyndasafni sem hann hefur viðað að sér í gegnum árin frá afa sínum og ömmu sem voru jöklafarar og miklir náttúruunnendur. Í maí 2026 hlaut Andri Snær WWF-Póllandsverðlaunin - Rödd fyrir lifandi plánetu sem veitt voru fyrir þátttöku hans og hlutverk í heimildarmyndinni Um tímann og vatnið (National Geographic), en verðlaunin eru veitt aðalpersónu kvikmyndar sem hvetur aðra til aðgerða í þágu náttúrunnar. Í september 2026 fékk Andri Snær náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti á degi íslenskrar náttúru en verðlaunin eru veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar.Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Sat, 24 Oct 2026 - 99 - Jón Gnarr, Dagur B. og frelsið í áhrifaleysinu
Af hverju gat Jón Gnarr ekki verið áfram í þingflokki Viðreisnar og látið til sín taka sem óbreyttur þingmaður? Og hvað ætlar ríkisstjórnin sér með verðtryggðu lánin? Eyrún Magnúsdóttir, Helga Arnardóttir og Aðalheiður Ámundadóttirræða um Viðreisn og verðtrygginguna.
Meðal efnis í þættinum:
Jón Gnarr yfirgefur þingflokk Viðreisnar en ekki flokkinn. Er staða hans sambærileg við stöðu Dags B. Eggertssonar innan Samfylkingarinnar? Rýnt í hvernig þeir hafa spilað ólíkt úr sinni stöðu. Áform um að stytta hámarkslánstíma verðtryggðra fasteignalána í 25 ár eru komin í samráðsgátt.Bankastjórar þriggja stærstu bankanna vilja afnema verðtrygginguna. Af hverju gengur ríkisstjórnin ekki lengra?Hvaða áhrif hefur styttri lánstími á tekjulága fyrstu kaupendur?Lífeyrissjóður varar við: verðtryggð lán geti verið skynsamleg í hávaxtaumhverfi.Af hverju megum við ekki bera okkur saman við Færeyinga? Þar bjóðast 30 ára lán á 4,8% föstum vöxtum.Matarverð: Hagar hækka afkomuspá um 800 milljónir á sama tíma og verslanir frysta verð.Hvernig hefur þingmönnum farnast sem yfirgefa þingflokka sína á miðju kjörtímabili?Forystuleysi, veikindaleyfi og þingflokkur án formanns: hvað er að gerast innan Viðreisnar?Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Tue, 20 Oct 2026 - 98 - Feður í fangelsi - Kvíðinn fyrir að koma aftur heim
Hvernig er að taka á móti börnunum sínum í heimsókn í fangelsi, og hvernig er að snúa aftur í foreldrahlutverkið að afplánun lokinni? Á Íslandi eru ekki til upplýsingar um hversu mörg börn eiga foreldri í fangelsi, þótt slíkar tölur séu til í nágrannalöndunum. Þá hafa rannsóknir á foreldrum í fangelsum að miklu leyti snúist um mæður, en feður hafa síður fengið rödd.
Árni Sveinsson starfaði í átján ár sem ráðgjafi fyrir foreldra hjá velferðarsviði Kópavogsbæjar og hitti þar reglulega feður sem voru að koma úr afplánun. Meistararannsókn hans í afbrotafræði við Háskóla Íslands ber yfirskriftina „Ég var góður pabbi og er góður pabbi“ og tók hann viðtöl við fimm feður sem voru við það að ljúka afplánun eða höfðu nýlokið henni.
Erla Hlynsdóttir blaðamaður ræðir við Árna um rannsóknina.Meðal þess sem fram kemur:
Feðurnir lýsa aðstæðum til heimsókna í fangelsin sem kuldalegum og óbarnvænum.Viðmót starfsfólks á vakt getur breytt tilhlökkun og gleði í kvíða og óöryggi, bæði hjá börnunum og feðrunumEinn faðirinn sem fékk dóttur sína í heimsókn var miður sín eftir að kynlífshljóð heyrðust þaðan sem aðrir fangar tóku á móti maka sínum. Annar faðir sem afplánaði á Kvíabryggju fór út með börnin til að létta andrúmsloftið en þegar þau komu aftur inn lágu dæmdir barnaníðingar á dótinu þeirra. Það er á herðum nánustu ættingja að koma með börnin í heimsókn til föður síns í fangelsið. Að vera fluttur í fangelsi sem er lengra í burtu frá þeim getur gert heimsóknir stopulli.Mæður fanganna, ömmurnar, lögðu mikið á sig til að viðhalda tengslum þeirra og barnanna.Félagsleg stimplun fylgir þeim út úr fangelsinu og þeir upplifa kvíða við að gera hversdagslega hluti á borð við að fara út í búð eða mæta í skóla barnanna sinna.Einn af feðrunum sem Árni ræddi við var að taka einn við uppeldi dóttur sinnar þegar hann kæmi úr fangelsi og óttaðist að gera mistökSkortur á stuðningi við þá sem foreldra innan fangelsiskerfisins og þegar þeir eru búnir að ljúka afplánunÁrni segir það samfélagslega mikilvægt að styðja þessa feður, ekki aðeins þeirra vegna heldur líka vegna barnanna þeirra.Viðmælandi í þættinum er Árni Sveinsson.
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Thu, 15 Oct 2026 - 97 - Sirkabát #18 - PISA er ekkert venjulegt próf
Er PISA-könnunin stærsta skákmót í heimi?
Niðurstöður PISA 2025 sýna að færni íslenskra grunnskólanema hefur aldrei mælst minni. En hvernig virkar PISA-könnunin í raun og veru og hvað má lesa úr niðurstöðunum? Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónssonog Georg Gylfasonrýna í landsskýrslu PISA sem kom út nýverið, ræða flókna tölfræði sem býr að baki og velta því upp hvaða ályktanir er hægt að draga þegar frammistaða íslenskra nemenda er borin saman við önnur lönd og fyrri kannanir. Þeir útskýra hvers vegna PISA er í raun eins og risastórt skákmót þar sem andstæðingurinn er prófspurningin.
Í þættinum er meðal annars farið yfir:
Hvers vegna PISA er ekki próf í hefðbundnum skilningi og hvernig Elo-stig úr skák skýra útreikninganaHvaðan 500 stiga viðmiðið kemur og hvað 422 stig í lesskilningi þýða í raunHæfniþrepin og hvers vegna OECD líkir þeim við fatastærðirAf hverju PISA segir margt um hópa en lítið um einstaka nemendurFallið 2018–2022 í samanburði við lækkunina 2022–2025, og Ísland í samanburði við DanmörkuCovid, lesfimi og skortinn á árlegum mælingumHvers vegna England hefur haldið sínu striki og hvað íslenska PISA-skýrslan segir um stöðugleika í stefnumótunFjölgun nemenda af erlendum uppruna og samsetningaráhrifÞýðingar á prófspurningum: skipta þær máli?PISA sem hitamælir en ekki greiningartólSirkabát er þáttur sem Gímaldið gefur út þar sem rýnt er í fréttir í tölum og tölur í fréttum. Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Sat, 10 Oct 2026 - 96 - Af hverju teljast hlaðvörp fjölmiðlar?
Deilt hefur verið um skilgreiningu á því hvað telst fjölmiðill. Af hverju teljast hlaðvörp fjölmiðlar samkvæmt skilgreiningu fjölmiðlanefndar og af hverju eru fjölmiðlamenn eða hlaðvarparar ekki endilega blaðamenn? Þetta eru hugtök sem margir rugla saman enda ekki furða því hlaðvarpssenan hefur aldrei verið sterkari í íslensku fjölmiðlaumhverfi. Í þessum þætti verður gerð tilraun til að skýra af hverju hlaðvörp, hvort sem þau eru skemmtiefni eða eitthvað annað, teljast fjölmiðlar í skilningi laganna eins og þau eru núna en umsjónarmenn þeirra teljast ekki endilega blaðamenn. Helga Arnardóttirblaðamaður Gímaldsins ræðir við Elfu Ýr Gylfadóttur fráfarandi framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar og Sigríði Dögg Auðunsdóttur formann Blaðamannafélagsins sem ætla að reyna greiða úr þessari hugtakaflækju.
Menningar, nýsköpunar og háskólaráðuneytið hefur engu að síður boðað breytingar á fjölmiðlalögum þar sem til stendur að endurskoða lögin í heild sinni og hluti af því snýr að skráningarskyldu hlaðvarpa. Til stendur að leggja fram breytingar á lögunum í mars á næsta ári samkvæmt þingmálaskrá.
Áskriftum af hlaðvörpum fjölgar á meðan áskriftum af fréttafjölmiðlum fækkar samkvæmt úttekt Fjölmiðlanefndar. Nokkrir umsjónarmenn vinsælla hlaðvarpa sem teljast fjölmiðlar samkvæmt lagalegri skilgreiningu hafa neitað, af prinsipp ástæðum segja þeir, að skrá hlaðvörpin sín sem fjölmiðla og horfa nú fram á íþyngjandi sektir frá hinu opinbera þrátt fyrir að tvö dómsmál hafi í raun staðfest að hlaðvörp séu sannarlega fjölmiðlar. Eru fjölmiðlalögin úrelt eftir að hlaðvörpin fóru að ryðja sér til rúms í ríkari mæli? Nei, segir Elfa Ýr Gylfadóttir fráfarandi framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar sem telur lögin mjög skýr í þessu efni og raunar séu þau nútímalegri en í mörgum öðrum löndum þar sem þau séu tæknióháð. Af hverju vilja sumir umsjónarmenn hlaðvarpa ekki skrá þau sem fjölmiðla þótt það sé að öllu leyti frítt og hvaða afleiðingar hefur það að gera það ekki? Hver er kosturinn við það að skrá sig og hvaða vernd hefur það í för með sér fyrir bæði almenning og fjölmiðilinn sjálfan? Menningar, nýsköpunar og háskólaráðuneytið hefur boðað breytingar á fjölmiðlalögum þar sem til stendur að endurskoða lögin í heild sinni og hluti af því snýr að skráningarskyldu hlaðvarpa. Til stendur að leggja fram breytingar á lögunum í mars á næsta ári samkvæmt þingmálaskrá.Viðmælendur í þessum þætti eru Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar og Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.Thu, 08 Oct 2026 - 95 - Kristrún: „Ég er ekki kosin til að verja ríkiskerfið“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er gestur Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um stjórnmál, og ræðir við Aðalheiði Ámundadóttur um pólitískar skoðanir sínar og hvort hún skilgreini sig til vinstri eða hægri; um endurreisn Samfylkingarinnar, hvort flokkurinn hafi færst til hægri og hvort vinstrið sé horfið af Alþingi. Kristrún hefur lengi verið með stöðu jafnaðarmannaflokka á heilanum og telur almenna velferð hafa gleymst í umræðu um réttindi stakra hópa. Samstarfið við Ingu Sæland fyllir hana auðmýkt á hverjum degi. Kristrún ræðir líka EES samninginn og breytingar í alþjóðastjórnmálum.
Meðal umræðuefna:
Hvernig Samfylkingin fékk sjálfstraustið á ný.Af hverju það er feimnismál að vera vinstrimaður á Íslandi.Af hverju fólk upplifir sig velkomnara í hægri flokkum en vinstri flokkum.Að farið hafi verið of geyst í alþjóðavæðingu.Hvaðan fylgi popúlista kemur og hvernig jafnaðarmenn eigi að svara því.Viðhorf forsætisráðherra til Flokks fólksins sem hún segir misskilinn.Verja þurfi auknum mannauði og fjármagni til að standa vörð um EES-samninginn.Gremja í alþjóðasamstarfi fari ekki lengur fram bak við luktar dyr.Varnir Íslands séu í öruggum höndum, þrátt fyrir stjórnmál Hvíta hússins.Viðtalið við Kristrúnu á Gímaldinu: https://gimaldid.is/kristrun-samfylkingin-hafdi-fjarlaegst-hinn-venjulega-islending/
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Sun, 04 Oct 2026 - 94 - Skuggastríð, svartir listar og ógnin frá Rússlandi
Í byrjun ágúst hæfði dróni með sprengiefni flutningavél á flugvellinum í Leipzig og þýsk stjórnvöld sögðu Rússa bera ábyrgð. Síðan þá höfum við ítrekað heyrt af svipuðum atvikum, nú síðast þegar rússnesk flugvél rauf lofthelgi Finnlands. Evrópskar leyniþjónustur telja að ógnin frá Rússlandi sé komin á nýtt stig. Þótt Rússar hafi ekki lýst yfir stríði gegn neinu ríki Evrópusambandsins þá er Evrópa komin í einhvers konar skuggastríð. Vopnin eru ekki hefðbundin stríðstól heldur svartir listar, frysting eigna og efnahagsþvinganir.
Aðalheiður Ámundadóttirstjórnmálaskýrandi Gímaldsins rýnir í svörtu listana, en á þeim eru ekki lengur bara ólígarkar og auðmenn heldur áhrifavaldar og álitsgjafar. Eyrún Magnúsdóttir stýrir þættinum.
Meðal efnis:
Evrópusambandið samþykkti á dögunum að framlengja gildistíma á lista yfir 3.000 Rússa sem taldir eru ógna Evrópu.Drónaárásin í Leipzig, lofthelgisbrot í Finnlandi og vaxandi fjölþáttaógnir í Evrópu„Móðurlistinn“ frá 2014 með um 3.000 nöfnum og „áróðurslistinn“ frá 2024 með rúmlega hundrað nöfnumHverjir eru á listunum og hverjir hafa losnað þaðan?Neitunarvaldið og dramatíkin í Brussel í september, þegar listinn var framlengdur til þriggja ára gegn því að tveir menn færu af honumViðbrögð Úkraínu og krafan um að Vladimir Lisin og Vladimir Potanin fari á listannEvrópa hlífir þeim sem hún þarf sjálf á að halda, stáli, nikkeli og palladíumFjölmiðlakonan Xenia Fedorova af RT France sett á áróðurslistann í septemberÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Thu, 01 Oct 2026 - 93 - Verðtryggðu lánin sem aldrei lækka: Fréttaskýring á mannamáli
Ert þú lántakandi á verðtryggðu láni með stökkbreyttan höfuðstól eftir þráláta verðbólgu síðustu ár og viltu skilja af hverju það hækkar bara og hækkar? Veltirðu fyrir þér hvenær og hvernig verðtryggða lánið þitt lækkar einhvern tímann? Í þessari umfjöllun er útskýrt á mannamáli hvernig síhækkandi vísitala hefur langvarandi áhrif á höfuðstól verðtryggðra lána, hvernig þau eru reiknuð og hvað þarf til að þau lækki. Þá eru borin saman lánakjör hér á landi og í Danmörku með tilliti til lánaforma og vaxtakjara.
Rætt er við Helgu Björgu Helgadóttur á 68. aldursári sem hugar brátt að starfslokum. Hún keypti íbúð árið 2005 í Norðlingaholti ásamt eiginmanni sínum. Þau endurfjármögnuðu fasteignalánin í Covid 2020 þegar vextir voru sögulega lágir.Eftir þrálátt verðbólguskeið og hátt vaxtastig síðustu ár hafa verðtryggðu lánin á íbúð Helgu hækkað um 11 milljónir og greiðslubyrðin tvöfaldast.Rætt er við Ragnhildi Þórðardóttur sálfræðing og heilsuáhrifavald betur þekkt sem Ragga nagli, sem hefur búið í Kaupmannahöfn síðan 2009 og keypti íbúð þar með hefðbundnu óverðtryggðu láni.Kjör Helgu og Ragnhildar eru borin saman því munurinn er mikill. Á meðan 11 milljónir hafa hlaðist á höfuðstól verðtryggðu láni Helgu hefur Ragnhildur greitt niður 16 milljónir af sínu hefðbundna óverðtryggða láni í Danmörku.Skýrt verður út fyrir fólki hvernig hin svokallaða vísitala neysluverðs þróast með hækkandi og lækkandi verðlagi á vörum og þjónustu sem við landsmenn kaupum og hvernig það hækkar eða lækkar lánin okkar.Stærðfræðingur Ásta Jenný Sigurðardóttir útskýrir hvernig síhækkandi vísitala hækkar verðtryggð lán landsmanna og forstöðumaður hjá áhættustýringu Íslandsbanka útskýrir hvernig verðtryggðu lánin eru reiknuð með vísitöluhækkun.Viðmælendur í þættinum:
Helga Björg Helgadóttir
Ragnhildur Þórðardóttir
Breki Karlsson
Ásta Jenný Sigurðardóttir
Kristján Rúnar Kristjánsson
Bendikt GíslasonHandrit og dagskrárgerð: Helga Arnardóttir
Hljóðvinnsla og tónlist: Bragi Þór Hinriksson
Mynd: PixabayÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Mon, 28 Sep 2026 - 92 - Ólafur Þ: „Við erum Vestur-Evrópumeistarar í misvægi atkvæða“
Ísland stendur verr að vígi en flest ríki Vestur-Evrópu þegar kemur að jöfnu atkvæðavægi, að mati Ólafs Þ. Harðarsonar, prófessors emeritus í stjórnmálafræði, sem leiddi starfshóp um breytingar á kosningakerfinu. Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við hann um áhrif ójafns atkvæðavægis á stjórnmálin, um tillögur hópsins og möguleg áhrif þeirra.
Hópurinn leggur til að 36 þingmenn verði kjördæmakjörnir, sex þingmenn úr hverju kjördæmanna sex. Hin 27 þingsætin verði jöfnunarsæti og þeim útdeilt til kjördæma í hlutfalli við tölu kjósenda á kjörskrá. Þá leggur hópurinn til að úthlutun jöfnunarsæta til einstakra kjördæmislista verði breytt svo hún verði stöðugri.
Meðal efnis í þættinum:
Framsóknarflokkurinn hagnaðist mest á misvægi milli flokka á 20. öld. Árið 1931 fékk flokkurinn 36 prósent atkvæða en 58 prósent þingmanna.Landsbyggðin nýtur forréttinda í atkvæðavægi á Íslandi og í Noregi en hefur enga aukamenn í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Færeyjum og á Grænlandi.Engin gögn sýni að hagur landsbyggðarinnar sé betri þar sem hún nýtur forréttinda í kosningakerfinu.Ólafur segir áhyggjur af hagsmunum landsbyggðarinnar minna á þá fyrirgreiðslupólitík sem var allsráðandi á síðustu öld.Hvert kjördæmi fengi sex kjördæmissæti og 27 jöfnunarsæti myndu skiptast á milli þeirra eftir íbúafjölda.Norðausturkjördæmi fengi aðeins sex þingmenn en Kraginn fengi átján þingmenn.Hringekja jöfnunarsæta á kosninganótt yrði minna vandamál með tillögum hópsins og uppákoma á borð við Borgarnesendurtalninguna 2021 endurtæki sig ekki.Samfylkingin fékk þrjá þingmenn í kosningunum 2016, alla af landsbyggðinni, þótt flokkurinn hefði mest fylgi í Reykjavík. Tillögur hópsins hefðu breytt því.Réttur til að greiða atkvæði til vara gæti komið í veg fyrir að atkvæði til smáflokka falli dauð. Hópurinn leggur það ekki til en bendir á þann möguleika.Þingmenn hafa verið 63 frá 1987 og Ólafur telur mörg rök mæla með fjölgun þeirra, þótt hún sé óvinsæl.Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Ljósmynd: Ragnar Visage/RÚV
Sat, 19 Sep 2026 - 91 - Þjóðin sem kann ekki að geyma leyndarmál
Ísland þarf að ráða við það að vernda mikilvægar upplýsingar. Frumvarp um ný öryggislög verður lagt fram í vetur í því skyni að aðrar þjóðir viti hver hefur hvaða öryggisvottun á okkar her- og leyniþjónustulausa landi. Þingstörf eru hafin eftir viðburðaríkt sumar og forystumenn stjórnarandstöðunnar setja sig í stellingar fyrir veturinn. Eyrún Magnúsdóttirog Aðalheiður Ámundadóttir fara yfir fyrstu daga haustþingsins, þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, stefnuræðu Ursulu von der Leyen og hugmynd nokkurra þingmanna um sjö ríkja bandalag við Norður-Atlantshaf sem inniheldur bæði Kanada og Bandaríkin.
Meðal þess sem rætt er í þættinum:
Haustþingið fer rólegar af stað en boðað var. Harkan sem búist var við af stjórnarandstöðunni eftir þjóðaratkvæðagreiðslu lætur bíða eftir sér.Stemningin við stefnuræðuna, harðari tónn Þorgerðar Katrínar, ummælin um AfD og strengurinn milli valkyrjanna þriggja.Þingmálaskráin inniheldur 153 mál, þar af 127 lagafrumvörp. Stiklað á stóru í þættinum og farið yfir valin þingmál.Öryggisvottun á dagskrá þingsins. Ísland er herlaus þjóð sem kann ekki að geyma leyndarmál.Tóbak, rafrettur og nikótínvörur sameinuð í einn lagabálk og sterk hagsmunaöfl munu beita sér gegn því.Ráðherra virðist stefna að banni við hvalveiðum en segir það ekki beinum orðum.Auknar heimildir lögreglu gegn skipulagðri brotastarfsemi, lengra gæsluvarðhald, húsleit án dómsúrskurðar og hvers vegna víðtækar heimildir verða að daglegu verklagi.Einstaklingssniðin heilbrigðisþjónusta og erfðaupplýsingar. Hugtök á borð við gagnagrunnur og upplýst samþykki aftur á dagskráNokkrir þingmenn hafa lagt fram tillögu um að Ísland hafi frumkvæði að því að mynda sjö ríkja fríverslunarbandalag við Norður-Atlantshaf og fái Bandaríkin, Bretland, Kanada, Grænland, Færeyjar og Noreg að borðinu.Ræða Ursulu von der Leyen: Evrópa á krossgötum og enginn slaki gagnvart uppgangi öfgaafla.
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.Fri, 18 Sep 2026 - 90 - Ekkert óveðursský yfir Alþingi
Í fyrsta þætti Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um stjórnmál, ræðir Aðalheiður Ámundadóttir við Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis, um þingstörfin framundan. Þórunn kannast ekki við ófrið sem boðaður hefur verið á haustþingi og finnur ekki fyrir honum innanhús á Alþingi. Hún ræðir hótanir og aðkast í garð þingmanna, starfið á Alþingi og hvernig hún býr sig undir erfiðar umræður í þinginu.
Meðal efnis í þættinum:
Er óveðurský yfir Alþingi þetta haustið?Hvernig forseti býr sig undir erfiðar umræður.Ofstopi, hótanir og hatursorðræða gegn þingmönnumFram að jólum hefjast allir þingfundir á sama tíma, kl.13:30. Þetta er tilraun þingforseta til að gera þingið að betri vinnustaðFarið verður í saumana á þingsköpunum og gerð atlaga að breytingum ef vilji og skýr markmið eru fyrir hendi.Fundarstjórn forseta: Stundum verða menn að fá að pústa.Eru allir jafn áfram um að þingstörfin gangi vel? Heimsókn þingforseta Úkraínu í ágúst og samstarf þingforseta.Er Alþingi úrelt tæknilega séð?Í lokin: þingstörf komandi viku og andlegt ástand flokkanna
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.Mon, 14 Sep 2026 - 89 - Margrét Einarsdóttir: „Ef við viljum vera aðilar að EES þá þurfum við að innleiða þessa bókun“
Hvað gerist ef við klárum ekki að innleiða bókun 35? Margrét Einarsdóttirlagaprófessor og sérfræðingur Evrópurétti er í viðtali við Gímaldið og fer yfir þessa umtöluðu bókun. Umræður um Bókun 35 við EES – samninginn hafa verið fyrirferðarmiklar að undanförnu. Íslendingar hafa skuldbundið sig til að innleiða þessa bókun en ekki staðið við það.
Margrét segir mikilvægt að þingið innleiði Bókun 35 sem fyrst og segir málið ekki koma niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu við á nokkurn hátt. Hún telur afleiðingarnar alvarlegar verði það ekki gert. Þá stefni í að málið verði tekið fyrir í EFTA dómstólnum og hún segir nánast gefið að íslenska ríkið tapi því.Ríkisstjórnin hyggst leggja fram frumvarp um innleiðingu bókunarinnar á þingi í þessum mánuði. Þetta verður í fjórða skipti sem frumvarpið er lagt fram, tvisvar sinnum hefur það dagað uppi í tíð núverandi ríkisstjórnar og einu sinni í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar, Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna. Nú telja stjórnarflokkarnir brýnt að bókunin verði innleidd til að uppfylla skuldbindingar íslenska ríkisins gagnvart EES-samningnum. Hluti stjórnarandstöðunnar hefur gert tortryggilegt að þörf sé á lögfestingu Bókunar 35 og er útlit fyrir að einhver átök verði um það á þingi. Í þættinum er farið yfir hvernig viðsnúningur í dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands síðustu ár hefur haft þau áhrif að nú er íslenska ríkið undir miklum þrýstingi að innleiða bókunina.Helga Arnardóttir hefur umsjón með þættinum.
Fri, 11 Sep 2026 - 88 - Aðalheiður Ámundadóttir: Skýrleiki í pólitíska glundroðanum
Gímaldið er á fleygiferð. Sífellt fleiri hlusta og lesa, og við finnum fyrir vaxandi áhuga á því sem við höfum fram að færa. Núna í haust viljum við segja betur frá því sjálf fyrir hvað Gímaldið stendur, hvert við stefnum og hvers vegna. Af því tilefni verða birt hér á þessum vettvangi nokkur viðtöl sem við sem stöndum að Gímaldinu tökum hvert við annað.
Í þessum þætti ræðir Eyrún Magnúsdóttir við samstarfskonu sína, Aðalheiði Ámundadóttur, stjórnmálaskýranda Gímaldsins. Aðalheiður er lögfræðimenntuð, starfaði um árabil sem blaðamaður og fréttastjóri á Fréttablaðinu, hefur kennt og stundað rannsóknir í lögfræði og starfað á Alþingi.
Aðalheiður og Eyrún fundu fljótt samhljóm þegar þær fóru að ræða framtíð íslenskrar fjölmiðlaÞjónusta sem kjarni Gímaldsins: að hugsa umfjöllun út frá því hverju hún skilar lesandanum, ekki hv mörgum smellum hún skilarHvernig tekjumódel fjölmiðils, auglýsingar, styrktaraðilar eða áskrifendur, hefur bein áhrif á fréttamat og efnistökDraumurinn um Gímaldið sem samfélag: viðburðir, morgunkaffi og milliliðalaust samtal milli blaðamanna og áskrifendaHvað varð um gömlu, líflegu Facebook-umræðuna á Íslandi og er hægt að endurskapa hana í minni og markvissari mynd?Áform Aðalheiðar fyrir stjórnmálaumfjöllun vetrarins: vikulegur þáttur með viðtali og dýpri greiningu á einu máliReglulegur þingpistill sem gefur yfirsýn yfir stöðuna á Alþingi, stemningu og átök á bak við tjöldinAf hverju erlend stjórnmál, sérstaklega í Evrópu, eru orðin órjúfanlegur hluti af umfjöllun um íslensk stjórnmálHvernig lesendur og áskrifendur geta haft beint samband við Aðalheiði og af hverju hún vill endilega heyra frá þeim
Þær ræða hugmyndina á bak við Gímaldið, fjölmiðil sem vill hugsa fréttaflutning fyrst og fremst sem þjónustu við áskrifendur, frekar en kapphlaup um að vera fyrst með fréttirnar. Aðalheiður segir frá því hvers vegna áskriftarlíkanið skiptir svona miklu máli fyrir efnistök og fréttamat, hugmyndum sínum um Gímaldið sem samfélag með viðburðum, morgunkaffi og beinu samtali milli blaðamanna og lesenda. Loks ræðir hún áform fyrir pólitíska umfjöllun vetrarins: vikulegan þátt með viðtali og greiningu, reglulegan þingpistil og þróun fréttabréfs Gímaldsins.Hefur þú ábendingu eða skoðun á því sem Aðalheiður fer yfir í þessum þætti? Sendu henni línu á adalheidur@gimaldid.is — eða almennar ábendingar á ritstjorn@gimaldid.is.
Fri, 04 Sep 2026 - 87 - Pólitísk ábyrgð og eftirmál baráttunnar
Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir gera upp þjóðaratkvæðagreiðsluna, aðdraganda hennar og möguleg eftirmál. Þær rýna í hliðstæðurnar við Brexit, baráttuaðferðir fylkinganna, pólitíska ábyrgð í kjölfar niðurstöðunnar og allt sem ekki má gleymast í uppgjöri umræðunnar.
Umræðuefni og spurningar sem varpað er fram í þættinum:
Á Kristrún að henda inn handklæðinu og skilja stjórnarandstöðuna eftir í súpunni?Báðar hreyfingarnar sitja uppi með niðurstöðuna. Hver þarf að axla ábyrgð og á hverju?Tilheyrir upplýsingaóreiða einhverju tómarúmi sem enginn ber ábyrgð á?Áfram Ísland hafði Brexit-handbókina á náttborðinu, en gleymdi SJÁ að læra af reynslunni? Evrópusinnar vanmátu tilfinningarnar og klikkuðu á samtakamættinum.Hvað má læra af baráttu Áfram Ísland?Hvernig verða herferðirnar gerðar upp og hvað við lærum af því að elta peningana?Hvað getum við sótt í smiðju Brexit um uppgjör umræðunnar og þátt fjölmiðla?Hvernig mótast viðhorf unga fólksins sem sveiflaðist til og frá í könnunum?Hverfa Evrópumálin nú ofan í skúffu eða eru þau komin til að vera?Eru ræðuhöld aftur komin í tísku?Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Tue, 01 Sep 2026 - 86 - Brexit stundin runnin upp
Íslenska þjóðin tekst á við fjórðu þjóðaratkvæðagreiðsluna á þessari öld á laugardag. Umræðan hefur verið bæði góð og slæm, en núna á lokasprettinum er ljóst að Brexit-augnablikið er runnið upp. Ósönnum fullyrðingum er haldið á lofti sem aldrei fyrr. Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður ÁmundadóttirogHelga Arnardóttir fara yfir stöðuna á lokaspretti baráttunnar. Þær ræða kappræður, skoðanakannanirnar, baráttuaðferðir, upplýsingaóreiðuna og lygarnar og ábyrgðarleysið sem fylgir þjóðaratkvæðagreiðslum.
Engin könnun hefur sýnt marktækan eða afgerandi mun á fylkingum. Niðurstaðan mun ráðast á lokametrunum og því hverjir mæta á kjörstað.Kappræðurnar á RÚV skorti staðreyndavöktun en Kristrún tók hana að sér. Sólveig Anna með nýja sýn á stéttamun í íslensku samfélagi. Aldrei fyrr verið logið jafn mikið um orkumál.Ábyrgðarleysið er kerfisgalli þjóðaratkvæðagreiðslna: hver svarar fyrir lygarnar á sunnudaginn?Geta samfélagsmiðlar talist vettvangur lýðræðis af því allir hafa míkrófón?Er þjóðaratkvæðagreiðslan sjálf ef til vill ólýðræðisleg í eðli sínu?Bankastjóri Arion banka segir verðtrygginguna úrelta og lánasambandið óheilbrigt.Sama hvernig fer á laugardag: neytendamál, matarverð og vextir eru komin á kortiðÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Athugið að í upphafi fór röng hljóðskrá inn en henni var skipt út eftir nokkrar mínútur. Hljóð í upphafi eldri hljóðskrár var brotið, við biðjumst velvirðingar á því.
Fri, 28 Aug 2026 - 85 - Benedikt Gíslason: Áhættan öll hjá þeim sem tekur verðtryggða lánið en lánveitandinn varinn
Verðtryggingin er úrelt og barn síns tíma segir Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka sem telur hana flækja allan bankarekstur og vill draga verulega úr vægi hennar, jafnvel afnema að fullu. Hann segir þráláta verðbólgu afleiðingu þess að bankarnir geri upp í tveimur myntum, óverðtryggðum og verðtryggðum. Áhættan sé alfarið sett á lántakann en ekki lánveitandann og henni sé dreift ójafnt á milli kynslóða. Benedikt telur margt geta breyst við upptöku evru í íslensku lána umhverfi en segir sorglegt að við getum ekki tekið ákvörðun um afnám verðtryggingar sjálf því öll skilyrði fyrir því séu til staðar og aðstæður í íslensku efnahagskerfið séu verulega breyttar frá því verðtryggingin var sett árið 1979.
Helga Arnardóttir ræddi við Benedikt Gíslason.
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.Thu, 27 Aug 2026 - 84 - Já-ið yrði innblástur fyrir Norðmenn
Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur bjó um árabil í Noregi og hefur fylgst grannt með umfjöllun um íslensku þjóðaratkvæðagreiðsluna þar í landi. Sú umræða fer ekki endilega fram á kaffistofum en stjórnkerfið, einkum norska utanríkisráðuneytið, setur sig í stellingar fyrir niðurstöðuna. Eyrún Magnúsdóttirræðir við Herdísi um stöðuna í norskri pólitík og um það hvort Norðmenn eru eitthvað að pæla í þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi og hvaða áhrif hún gæti haft.
Meðal þess sem rætt er í þættinum:
Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Noregs vilja ganga í Evrópusambandið, en frumkvæði að samtali um það yrði að koma frá grasrót VerkamannaflokksinsEvrópumálin hafa legið í láginni undanfarin ár en merki eru um að aukinn áhugi sé að myndastTollar á járnblendi hreyfðu við umræðu um stöðu EES-samningsinsSegi Íslendingar já í þjóðaratkvæðagreiðslu verður það klárlega innspýting og innblástur fyrir Norðmenn að fara inn í samtalið um framtíð EES og mögulega aðild að ESBÍ fyrsta skiptið síðan 1994 eru fleiri kjörnir fulltrúar opnir fyrir aðild og skoðanakannanir sýna breytingu meðal almenningsVerkamannaflokkurinn, flokkur forsætisráðherra, er klofinn í afstöðu til aðildar en Høyre, systurflokkur Sjálfstæðisflokksins, er yfirlýstur EvrópuflokkurNoregur situr ekki við borðið þegar stærstu ákvarðanir um varnarmál eru teknar og það ergir stjórnmálamenn sem vilja meira vægi Norðmanna í þeim ákvörðunum, vægi sem ekki fæst með EESÁhrifaleysi EES-samningsins hefur töluvert verið rætt í Noregi og sú staða sem upp gæti komið ef Noregur situr eftir í EES, bara með Lichtenstein – sem er á stærð við KópavogÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Tue, 25 Aug 2026 - 83 - Valdið og miðin: ESB, auðlindir og undanþágur
Í nýrri álitsgerð þriggja prófessora í lögfræði við Háskólann í Reykjavík er fjallað um valdheimildir Evrópusambandsins og hvaðan þær koma, orkustefnu ESB, sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna, aðildarsamninga og aðildarviðræður. Svo eru rakin fjölmörg dæmi um undanþágur og sérlausnir sem ríki hafa samið um við ESB. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir rýna í álitsgerðina sem snertir á mörgum af heitustu ágreiningsefnum sumarsins.
Í þættinum er meðal annars fjallað um:
Hvaða reglur gilda um eignarréttindi innan ESB?Getur Evrópusambandið búið til valdheimildir fyrir sjálft sig?Hverju getur Evrópusambandið ráðið um auðlindir aðildarríkja? Er þorskur þjóðarauðkenni?Orkulöggjöfin er að mestu komin inn um EES, en heldur Ísland undanþágum sínum?Getur ESB ákveðið að leggja sæstreng til Íslands?Hvernig myndu þorskveiðar breytast ef Ísland gengi í ESB? Hvað yrði um samninga Íslands um makrílinn, norsk-íslensku síldina og kolmunna? Dönsku sumarhúsin, sænska snúsið, heimskautabændur og fiskimið Möltu - hvað kenna fordæmin um undanþágur?Álitsgerðina má lesa á vef Stjórnarráðsins en hana unnu þrír prófessorar við Háskólann í Reykjavík: Gunnar Þór Pétursson, Hafsteinn Dan Kristjánsson og Margrét Einarsdóttir.
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Sun, 23 Aug 2026 - 82 - Akademíski armur Áfram Ísland og Brexit-bragur á lokasprettinum
Hvenær er fundur fræðilegt innlegg í umræðu og hvenær er hann pólitískur áróðursfundur? Gímaldið hefur birt umfjöllun um fund nei- hreyfingarinnar Áfram Ísland með svissneskum lögfræðingi og fyrrverandi prófessor og dómara, Carl Baudenbacher, en sagan af einni lítilli bókun á sal innan Háskóla Íslands er með nokkrum ólíkindum svo ekki sé meira sagt, eins og rætt er um í þættinum.
Tvær vikur eru í þjóðaratkvæðagreiðslu og ritstjórn Gímaldsins veltir fyrir sér stöðunni, næstu skrefum í baráttunni og hvaða tromp já og nei fylkingar eiga uppi í erminni á lokametrunum. Einnig: hverju tekur fólk mark á? hvaða upplýsingum er treystandi og er það virkilega þannig að fólk sé sent í heita potta gagngert til að veiða atkvæði?
Hátíðarsalur HÍ er eingöngu ætlaður viðburðum á vegum skólans sjálfs, Baudenbacher mátti tala hvar sem er annars staðar í húsnæði HÍ, honum var aldrei „úthýst".Áfram Ísland hefði aldrei getað fengið Hátíðarsalinn. Þrír fyrrverandi og núverandi fræðimenn komu að þessari bókun, sem sögð var á vegum rannsóknarseturs sem hefur verið óvirkt í mörg ár og var skráð á rannsóknarverkefni sem tengist málinu ekki neitt.Baudenbacher gagnrýndi rektor HÍ, utanríkisráðuneytið og RÚV fyrir fálæti í færslu á Linkedin eftir Íslandsförina, en eyddi svo þeim hluta færslunnar og skildi einungis þakkarorð eftir.Skoðanakannanir sýna nokkuð jafna stöðu tveimur vikum fyrir atkvæðagreiðslu (51,5% já / 48,5% nei skv. Gallup), en óákveðnum fer fækkandi og afstaða fólks er að festast.Umræðan er sögð hafa harðnað og líkjast Brexit, jafnvel hlutlausar upplýsingar eru afgreiddar sem áróður, og lítill markaður virðist fyrir dýpri, faglega umfjöllun úr þessu.Stóru miðlarnir, einkum RÚV, hafa dregið úr efnislegri umfjöllun um kosti og galla aðildar. Tækifærið til að upplýsa þjóðina var í vor, ekki núna.Lokasprettur beggja fylkinga mun líklega snúast um „maður á mann"-aðferð og að koma fólki á kjörstað fremur en nýjar upplýsingarFjármál hreyfinganna eru ógagnsæ og enginn veit hve miklu er eytt í kosningabaráttuna.Nauðsynlegt að ná utan um hversu mikla frumvinnu fjölmiðlar vinna til að fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Full ástæða til að taka það saman að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu.
Helga Arnardóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir sjá um þáttinn. Meðal efnis í þættinum:Umfjöllun Gímaldsins má lesa hér: Fundurinn sem enginn sagðist halda og rannsóknarsetrin þrjú sem tengjast Áfram Ísland
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Mon, 17 Aug 2026 - 81 - Formaður Vinstri grænna segir JÁ í ágúst
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, ætlar að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst, þótt flokkurinn sé formlega andvígur aðild að Evrópusambandinu. Samkvæmt könnunum ætlar yfirgnæfandi meirihluti kjósenda flokksins að segja já í atkvæðagreiðslunni. Rósa Björk segir forystu flokksins verða að leggja við hlustir og bregðast við viðhorfsbreytingunni í flokknum.
Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við Rósu Björk um Evrópumálin, landsmálin, ríkisstjórnina, NATO, móralinn í flokknum og framtíðina.
Meðal þess sem kemur fram í þættinum:
Formaðurinn vill halda dyrum opnum en ekki lokuðum. Forystan þurfi að leggja við hlustir þegar rúm 93% kjósenda VG ætla að segja já samkvæmt nýrri könnun og um 65% eru hlynnt aðild.Nokkrar kanónur í flokknum eru búnar að lýsa afstöðu sinni opinberlega. Svandís Svavarsdóttir fyrrverandi formaður ætlar að segja nei í ágúst, Stefán Pálsson starfar með Áfram Ísland og ungliðahreyfing flokksins starfar með ungum Sjálfstæðis- og Miðflokksmönnum í baráttu fyrir NEI. Formaðurinn segir fjölbreyttar skoðanir endurspegla lýðræðislegan styrk hreyfingarinnar.Lífskjör og staða alþjóðamála eigi stærstan þátt í viðhorfsbreytingu til ESB.Áherslur VG þurfi að heyrast við samningaborðið verði viðræðum haldið áfram: náttúruvernd, auðlindir, hagsmunir bænda, sjávarútvegsmál, réttindi vinnandi fólks og viðbrögð við tækninýjungum.Ríkisstjórnin hafi ekki haldið vel á málinu og Samfylkingin verið fjarverandi í kosningabaráttunni.Ríkisstjórnin gagnrýnd fyrir virkjanablæti, aukið atvinnuleysi, lakan árangur í efnahagsmálum og fyrir að bregðast ekki nógu kröftuglega við útlendingaandúð.NATO er að veikjast og ný bandalög gætu orðið til.Vinstri græn hafa rætt mikið um fortíðina og átt í uppgjöri. Nú vill formaðurinn snúa sér og flokknum að framtíðinni.Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Sun, 09 Aug 2026 - 80 - Lifir þjóðin ágúst af eða deyr hún úr leiðindum?
Ritstjórn Gímaldsins tekur stöðuna á kosningabaráttunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Rætt er um nýjustu skoðanakönnun, breytta taktík stjórnmálaflokkanna, fjármál og baráttuaðferðir já- og nei-hreyfinganna, hvort þjóðin sé orðin þreytt á málinu og hvort þögn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í umræðunni sé skynsamleg.
Eitthvað er að klikka hjá Áfram Ísland því stuðningur við nei eykst ekkert.Eldra fólk er að verða jákvæðara samkvæmt nýrri könnun á meðan tvær grímur renna á miðaldra fólk.Rúm 93 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna ætla að segja já í ágúst. Ungliðahreyfing og áhrifafólk í flokknum berst fyrir nei-hliðina.Sjálfstæðisflokkurinn biður flokksfólk að „fylgja eftir“ vinum og vinnufélögum fram að kosningum. Aðferðin minnir á pólitíska eltihrella.Hreyfingar sem þurfa ekki að gefa upp fjárframlög geta nú tekið við fé umfram það sem flokkar mega þiggja. Stjórnmálaflokkar hvetja fjársterka til að láta fé af hendi rakna.Opnir fundir henta ekki öllum hreyfingum. Evrópuhreyfingin ætlar að beita maður á mann aðferðinni en Sjá stendur fyrir opnum fundum.Kristrún Frostadóttir vill forðast mistök Davids Camerons og heldur sig til hlés.Eyrún Magnúsdóttir stýrir þættinum og með henni eru Aðalheiður Ámundadóttir, Erla Hlynsdóttir og Helga Arnardóttir.
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.Thu, 06 Aug 2026 - 79 - Sér tækifæri fyrir landsbyggðina
Reinhard Reynisson, sérfræðingur í byggðamálum, segir að ný eyjastefna Evrópusambandsins, sú fyrsta sinnar tegundar, geti reynst mikilvægt innlegg fyrir Ísland í hugsanlegum aðildarviðræðum. Hún taki sérstaklega á aðstæðum sem eigi vel við íslenskan veruleika: einangrun, háum flutningskostnaði og litlum heimamörkuðum.
Erla Hlynsdóttir ræðir við Reinhard um byggðamál í tengslum við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Farið er yfir hvernig byggðastefna Evrópusambandsins virkar, hvaða sérkenni Íslands gætu skipt máli í hugsanlegum viðræðum og hvort byggðastefna ESB geti skapað tækifæri fyrir íslenska landsbyggð.
Í þættinum kemur meðal annars fram:
Byggðamál eru ekki hefðbundinn málaflokkur heldur sjónarhorn sem á að tryggja jafnræði fólks óháð búsetu og hafa áhrif á stefnumótun á mörgum sviðum. Reinhard bendir á að Ísland búi yfir ákveðinni sérstöðu og nefnir nýja eyjastefnu Evrópusambandsins sem dæmi um að sambandið sé að bregðast við sérstökum aðstæðum eyjasamfélaga. Hann segir umræðuna um undanþágur oft villandi og telur í mörgum tilvikum fremur vera um að ræða eðlilega aðlögun reglna að ólíkum aðstæðum en eiginlegar undanþágur. Að hans mati byggja íslensk byggðastefna og byggðastefna ESB á svipuðum grunnhugmyndum um að jafna stöðu byggða, þótt ESB leggi jafnframt ríka áherslu á að styðja þau svæði sem verði undir í samkeppni hins sameiginlega markaðar. Reinhard telur líklegt að meiri andstaða við ESB á landsbyggðinni skýrist meðal annars af því að umræðan hafi að stórum hluta snúist um hagsmuni landbúnaðar og sjávarútvegs. Hann segir ekki unnt að fullyrða fyrirfram um áhrif ESB-aðildar á íslenskan landbúnað eða aðrar atvinnugreinar. Slíkt mat verði fyrst trúverðugt þegar fyrir liggi samningur sem hægt sé að greina. Reinhard nefnir Skotland sem dæmi um svæði sem hafi notið verulegs stuðnings úr byggðasjóðum ESB og segir jafnframt að Finnland, Svíþjóð og Írland séu þau ríki sem Íslendingar geti helst borið sig saman við þegar kemur að byggðamálum. Hann segir umræðuna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna þurfa meiri stillingu og jarðtengingu. Kosið verði í ágúst um hvort hefja eigi aðildarviðræður en ekki um endanlegan aðildarsamning, sem sé ekki til staðar.Frá sjónarhóli byggðamála telur Reinhard að möguleg ESB-aðild geti skapað tækifæri fyrir íslenska landsbyggð, meðal annars með auknum stuðningi við atvinnuuppbyggingu, búsetu og fjölbreytt atvinnulíf í dreifbýli.Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. (Reikningsupplýsingar: 0133-15-012265, kt. 490925-1040)
Wed, 29 Jul 2026 - 78 - „Skemmdarverk á lýðræðislegri umræðu“ – Gauti B. Eggertsson um staðreyndir og rangfærslur
Gauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði við Brown-háskóla í Bandaríkjunum segir það hafa verið hálfgerða tilviljun að hann fór að leggja sig fram um að leiðrétta rangfærslur í umræðu um Evrópumál og þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann hefur á undanförnum mánuðum birt greinar og útreikninga sem varpa ljósi á fullyrðingar í umræðunni sem ekki standast skoðun.
Eyrún Magnúsdóttirræðir við Gauta um þessa staðreyndavöktun, sem fer mikið til fram á samfélagsmiðlum, og um ógnir við lýðræðislega umræðu.
Í þættinum kemur meðal annars fram:
Ummæli Ólafs Ragnars um 25% atvinnuleysi ungmenna í Finnlandi byggja á misskilningi um mælingu atvinnuþátttöku. Hann gagnrýnir að slíkar upplýsingar séu bornar á borð fyrir fyrrverandi forseta og telur að Ólafur myndi aldrei fara viljandi með slíkar fleipur. Það sé illa gert að láta ungt fólk fá það á tilfinninguna að ef Ísland gengur í ESB verði erfitt að fá vinnuVaxtakjör almennings myndu klárlega batna við upptöku evru, enda eru raunvextir á Íslandi þeir hæstu í Evrópu. „Það er bara einfaldlega rangt“ að halda öðru fram, segir Gauti í viðtalinuGauti tekur dæmi um 60 milljóna króna húsnæðislán til 25 ára. Mánaðarlegar afborganir miðað við jafngreiðslulán væru 333.000 kr. á mánuði miðað við raunvexti á Íslandi en aðeins 220.000 kr. á evrusvæðinu. Alls fara 40 milljónir í vexti yfir lánstímann „í krónulandi“ en aðeins 6 milljónir „í evrulandi“ en hér má lesa grein Gauta um dæmiðTalan um að Ísland hafi aðeins tekið upp 13% af regluverki ESB er röng og byggir á að telja litla tilskipun um svínapest jafn þunga og heildar bankalöggjöf ESBFjölmiðlum ber ekki skylda til að gefa röngum og réttum upplýsingum jafnt vægi„Ég vildi að Íslendingar myndu temja sér betra hóf í þjóðfélagsumræðu og sérstaklega bera virðingu fyrir því að stundum eru hlutirnir réttir og stundum eru rangir,“ segir GautiGauti gagnrýnir „nýstárlegar kenningar“ um verðlag og segir engar deilur ríkja innan hagfræði um hvernig skilgreina beri verðlag. Tilraunir til að endurskilgreina verðlag sem hlutfall af tekjum snúi einfaldlega kaupmætti á hvolf og kalli það verðlag. Það sé eins og að segja að verðlag sé lægra á Seltjarnarnesi en í Reykjavík af því að fólk á Seltjarnarnesi sé með hærri launHann segir vel hægt að rökstyðja það að vilja vera utan ESB, þótt hann sé ekki á þeirri skoðun. Rökstuðningur á báða bóga verði þó að byggja á staðreyndum Hann segir afstöðu sína um að Ísland eigi að ganga í ESB grundvallast á fullveldi og varnar- og öryggismálumÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag. (Reikningsupplýsingar: 0133-15-012265, kt. 490925-1040)
Thu, 23 Jul 2026 - 77 - Ekki íþróttakeppni þar sem stórþjóðir valta yfir smáþjóðir
Er samstarf Evrópuþjóða eins og íþróttakeppni þar sem litlar þjóðir sitja alltaf eftir en þær stærri taka bikarinn? Dóra Sif Tynes, lögmaður og sérfræðingur í Evrópuréttisem meðal annars hefur starfað sem forstöðumaður lagaskrifstofu EFTA, segir að sú mynd standist ekki skoðun.
Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við Dóru um hvernig hlutirnir virka í Brussel: muninn á EES og EFTA, tveggja stoða kerfið, hversu háð Ísland er Noregi í EES-samstarfinu, hvernig lög og reglur verða til innan ESB og um áhrif og völd Íslands innan núverandi samstarfs.
Meðal þess sem kemur fram í þættinum:
- Tveggja stoða kerfið: hlutverk Eftirlitsstofnunar EFTA og EFTA-dómstólsinsEr Ísland viðhengi við Noreg í EES-samstarfinu?Hvernig verða reglur innri markaðarins í Evrópðu til: framkvæmdastjórnin, Evrópuþingið og ráðherraráðiðAf hverju Evrópuþingmenn skipa sér í flokka eftir stjórnmálaskoðun, ekki þjóðerniLandbúnaður og sjávarútvegur: hvað stendur utan EES-samningsins?Mýtan um „íþróttakeppnina" og það af hverju sex þingsæti þýða ekki áhrifaleysiMalta sem dæmi: 89% Maltverja eru ánægð með ESB-aðild. Malta er með sex manna þingflokk á Evrópuþinginu og á forseta þingsins Er fullveldisumræðan séríslensk, eða er hún líka til í öðrum aðildarríkjum? Í Belgíu var umræðan akkúrat öfug, Belgar litu á það sem staðfestingu á fullveldi að verða aðilar að Evrópubandalaginu, forvera ESB
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag. (Reikningsupplýsingar: 0133-15-012265, kt. 490925-1040)
Sat, 18 Jul 2026 - 76 - Er bannað að tala um álagningu á Íslandi?
Samkeppniseftirlitið er nú með verðhækkanir á matvöru og eldsneyti til skoðunar en hagsmunasamtök kveinka sér undan því í stað þess að hvetja til þess að verð lækki og þar með verðbólgan.
Eyrún Magnúsdóttir og Helga Arnardóttir, nýr liðsmaður Gímaldsins, ræða um hátt matvöruverð, methagnað matvörurisanna og af hverju enginn virðist geta sagt upphátt að álagning þurfi að lækka.
Matvöruverð á Íslandi er nánast alltaf í toppsætinu í Evrópu, eina samkeppnin í háu matvöruverði er Sviss sem er stundum hærra. Þrír aðilar, Hagar, Festi og Skel, eiga nánast allar matvöru- og eldsneytiskeðjur landsins og stýra þar með verði á tveimur vöruflokkum sem heimilin komast ekki hjá að kaupa.Verðlagseftirlit ASÍ mældi allt annað en hóflegar hækkanir 2020-2023: lambalæri +13,5%, mjólk +14%, ostur +18% og 200 gr. pakki af Góu hraunbitum hækkaði um 62% á þremur árum, langt umfram nokkra hráefnisskýringu.Á sama tíma margfaldaðist hagnaður risanna: Hagar fóru úr 2,7 ma. kr. hagnaði (2021) í 7,4 ma. kr. (2025), Festi úr 2,3 ma. í 6,2 ma.Hvað þýðir hugtakið hagnaðardrifin verðbólga (gróðaverðbólga)? Varað var við henni strax 2023 en nær enginn ræðir um hana.Forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Páll Gunnar Pálsson, hefur sætt harðri aðför fyrir að benda á staðreyndir þar til Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra steig fram og varði stofnunina.Taktík hagsmunaaflanna er alltaf sú sama: sá efasemdum um tölurnar og varpa sökinni yfir á neytendur.Efla þarf málsvara neytenda. Neytendasamtökin og Verðlagseftirlit ASÍ þyrftu meiri athygli, og fjölmiðlar hafa dregið úr neytendablaðamennsku, meðal annars af ótta við að styggja stóra auglýsendur.Verðbólga mælist nú 5,2% en forsenduákvæði kjarasamninga miðast við 4,7%. Samt beinist umræðan nær eingöngu að því að tala niður launahækkanir, ekki að því að stórfyrirtæki lækki álagningu.Spurt er: ef hagsmunasamtök eins og SA vilja í alvöru forðast frekari launahækkanir, því beita þau sér þá ekki fyrir lægra vöruverði?Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag. (Reikningsupplýsingar: 0133-15-012265, kt. 490925-1040)
Wed, 15 Jul 2026 - 75 - „Aðgangur að húsinu en ekki öllum herbergjum“ í styrkjakerfi ESB
Evrópskir styrktarsjóðir eru langstærsta alþjóðlega uppspretta styrkja inn í íslenskt vísinda-, mennta- og menningarsamfélag og aðgangur Íslands að þeim er vel tryggður í gegnum EES-samninginn. Ísland hefur þó enga formlega aðkomu þegar áætlanir eru mótaðar, en það myndi breytast með inngöngu í ESB. Þetta segir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís, í viðtali við hlaðvarp Gímaldsins. Rannís hefur umsjón með helstu samkeppnissjóðum á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og menningar á Íslandi, auk samstarfsáætlana ESB og norrænna áætlana sem veita styrki til samstarfsverkefna, náms og þjálfunar.
Við aðild EES árið 1994 opnuðust dyr íslenska þekkingarsamfélagsins að umtalsverðum styrkfjárhæðum og hafa Íslendingar verið mjög farsælir með styrkveitingar á undanförnum áratugum.Árin 2021–2027 er áætlað að íslenska ríkið greiði rúmlega 5 milljarða í rannsóknaráætlanir ESB en heimtur Íslendinga við styrkveitingar hafa verið umtalsvert meiri síðustu áratugi. Aðild að ESB myndi litlu breyta í heildarsamhenginu við styrkveitingar en Íslendingar fengju loks sæti við borðið og tækju þátt í ákvarðanatöku sem nú er nær eingöngu í höndum aðildarríkja ESB. Aðild að ESB myndi einnig opna dyr Íslendinga fyrir svokölluðum uppbyggingarsjóðum sem hafa styrkt innviði ESB-ríkja sem standa efnahagslega verr og eru með veika innviði. Íslenska ríkið hefur greitt háar fjárhæðir í þessa sjóði en ekki haft aðgang að þeim. Sjóðirnir hafa veitt styrki til uppbyggingar vegakerfis, atvinnulífs og fleira. Aðild að ESB hefði áhrif á aðra málaflokka eins og mögulega innviðauppbyggingu í landinu. Kostnaður íslenska ríkisins myndi ekki aukast verulega við aðild að ESB miðað við þær fjárhæðir sem nú þegar eru greiddar til styrktaráætlana Evrópusambandsins vegna EES-samningsins.Umsjón: Helga Arnardóttir
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Tue, 07 Jul 2026 - 74 - Kosningabaráttan: Geta gervimenni klofið þjóðina?
Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir fara yfir kosningabaráttuna sem nú er að taka á sig mynd vegna atkvæðagreiðslunnar í ágúst. Þær ræða nýjar baráttuhreyfingar, gæði umræðunnar og þá hættu að erlend ríki reyni að hafa áhrif á niðurstöðuna með upplýsingaóreiðu.
Af hverju er kosið um aðildarviðræður en ekki um aðild?Hvaða þýðingu hafa nýju já- og nei- hreyfingarnar fyrir þjóðfélagsumræðuna?Verður venjulegt fólk fyrir háði og spotti í baráttunni?Geta Halldór Benjamín og Sólveig Anna verið saman í liði? Erum við óvart farin að rökræða við rússnesk gervimenni á netinu?Hvað kostar að kaupa hundrað þúsund „áhrif" á samfélagsmiðlum?Mun baráttan kljúfa þjóðina?Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Fri, 03 Jul 2026 - 73 - Borgin, Bretland og Brexit á röngunni
Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða fyrstu hagræðingaraðgerðir nýs meirihluta í Reykjavík, tíu ára afmæli Brexit og óróa í breskum stjórnmálum, nýjan liðsmann Gímaldsins, áherslu á neytendaumfjöllun og nýja stjórnsýsluúttekt um Græna gímaldið.
Hvað kemur í staðinn fyrir alla upplýsingafulltrúa borgarinnar?Verður upplýsingamiðluninni útvistað og mega borgarbúar búast við fleiri „labba og tala“-myndböndum? Hvaða mistök kostuðu breska Evrópusinna aðild að ESB?Breskur borgarstjóri verður næsti forsætisráðherraJá-eða-nei-fylkingar farnar að þjappa sér saman. Hvor fylkingin situr uppi með hræðsluáróðurinn um ESB?Hvað stendur í nýrri úttekt um Græna gímaldið og hvernig tengist hún tiltekt á skrifstofu borgarstjóra?Dýrasti matur í Evrópu og neytendaáherslur Gímaldsins
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.Sat, 27 Jun 2026 - 72 - Dýrasti matur Evrópu og sofandi íslenskir neytendur
Hvergi í Evrópu er dýrara að kaupa í matinn en á Íslandi og hagnaður matvöruverslana heldur áfram að vaxa. Matvörurisar kenna launahækkunum um hátt matarverð en forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur að samfélagið allt hafi brugðist. Lega landsins, sérstakur gjaldmiðill og tollavernd spili þar inn í, en ekki síður eigi öflug hagsmunagæsla matvörumarkaðarins sinn þátt í hækkunum. Þá megi löggjafinn líta í eigin barm, en aðstæður hér á landi ýti undir fákeppni frekar en samkeppni. Frekar sé keppt í ýmiss konar þjónustu heldur en í verði á matvörum. Verðskyn neytenda brenglast í verðbólgu segir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna. Ítarleg úttekt á matvöruverði og hækkunum undanfarinna ára.
Viðmælendur í þættinum eru Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur hjá stéttarfélaginu Visku, Bjarki Steinn Benjamínsson, verkefnastjóri Verðlagseftirlits ASÍ og Brynhildur Pétursdóttur, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna.
Þáttastjórnandi er Helga Arnardóttir blaðamaður og nýr liðsmaður Gímaldsins.
Verðlag á Íslandi mælist 84% hærra en að meðaltali í 27 Evrópulöndum, samkvæmt úttekt Visku. Matvara er 55% dýrari en í ESB-ríkjunum, samkvæmt skýrslu Samkeppniseftirlitsins. Hærri laun skýri ekki allan verðmuninn. Verðmunurinn sé nær tvöfaldur á við launamuninn, og ofurtollar og fákeppni skýri stóran hluta þess sem umfram er.Engin samkeppnislög ná yfir afurðastöðvar á Íslandi, sem mega því hafa með sér verðsamráð. Páll Gunnar Pálsson segir samningsstöðu bænda veika í því ljósi og hækkun á kjöti eftir 2022 viðvarandi meiri en í öðrum vöruflokkum.Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að lítil verðsamkeppni ríki á matvörumarkaði; samkeppnin snúist oft um önnur atriði á borð við útlit, stærð og fjölgun sjálfsafgreiðslukassa. Prís býður lægsta matvöruverðið, um 4% lægra, samkvæmt Verðlagseftirliti ASÍ.Hagnaður Haga, sem rekur meðal annars Bónus, var 7,4 milljarðar króna 2025 og hefur aukist um 4,7 milljarða á fimm árum. Hagnaður Festi, sem rekur Krónuna, var 6,2 milljarðar og jókst um 3,9 milljarða á sama tímabili, þar af var hagnaður Krónunnar einnar 2,9 milljarðar — tæpur helmingur af heildarhagnaði Festi.Viðar Ingason, hagfræðingur VR, segir laun venjulega hækka til að vinna upp verðbólgu sem þegar er orðin. Sambandið liggi alla jafna í báðar áttir, en algengara sé að það finnist frá verðlagi yfir í laun.Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku, benti á hagnaðardrifna verðbólgu — svokallaða gróðaverðbólgu — strax árið 2023 þegar hann var hagfræðingur BHM.Samkeppniseftirlitið byggir á EES-samningnum og Páll Gunnar segir að án hans væri lítið sem ekkert samkeppniseftirlit á Íslandi.Að mati Hagfræðistofnunar myndi 25% lækkun matarverðs við ESB-aðild, eins og varð í Svíþjóð og Finnlandi, leiða strax til 3,5% lækkunar neysluverðs. Afnám tolla og annarra gjalda hefði umtalsverð áhrif til lækkunar.Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, segir verðskyn fólks brenglast í miklu verðbólguumhverfi. „Við þurfum þjóðarátak í nísku,“ segir Vilhjálmur Hilmarsson hjá Visku.
Meðal þess sem fjallað er um í þættinum:
Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.
Þessi umfjöllun er opin en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.Wed, 24 Jun 2026 - 71 - Lesin grein: Frá þjóðaratkvæði til aðildar: atburðarrásin ef þjóðin segir já
Lestur á fréttaskýringu af vef Gímaldsins um líklega tímalínu frá þjóðaratkvæðagreiðslu til fullgildrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu, segi þjóðin já þann 29. ágúst næstkomandi. Í greininni er fjallað um:
Ferlið hjá ESB eftir móttöku tilkynningar frá Íslandi um vilja til að taka upp viðræðurmikilvægi þess að umsókn Íslands frá 2009 er enn virkmótun samningsafstöðu hjá ESB og ríkjaráðstefnu aðildarríkjaeldri og nýrri viðræðurammasamninganefndir Íslands og samráð innanlandsþjóðaratkvæðagreiðslu og stjórnarskrárbreytingarFullgildingu samnings á Alþingi og gildistökukosningar til EvrópuþingsinsHægt er að lesa fréttaskýringunaá vef Gímaldsins, skoða skýringarmyndir sem henni fylgja og lesa tengt efni.
Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.
Þessi lestur er öllum opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Lesari: Aðalheiður Ámundadóttir.Sat, 20 Jun 2026 - 70 - Íslenskan gæti staðið sterkar innan ESB
Íslenskan myndi líklega standa sterkari innan Evrópusambandsins en utan þess, að mati Gauta Kristmannssonar, prófessors í þýðingafræði og deildarforseta íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Gauti er meðal þeirra sem sáu um túlkun í síðustu aðildarviðæðum Íslands og ESB, og hefur hann þegar fengið fyrirspurnir frá yfirmanni fjöltyngis á Evrópuþinginu um undirbúning að menntun fleiri túlka ef af aðildarviðræðum verður.
Erla Hlynsdóttir ræðir við Gauta Kristmannsson um stöðu íslenskrar tungu í tengslum við mögulegar aðildarviðræður við ESB. Það helsta úr viðtalinu:
Gangi ríki í ESB verður tungumál þess sjálfkrafa eitt af opinberum málum sambandsins. Hver borgari aðildarríkis á rétt á að eiga samskipti við stofnanir sambandsins á eigin móðurmáli og fá öll lög og reglugerðir á sínu tungumáli.Hugmyndir um að fækka opinberum tungumálum sambandsins hafa ekki fengið hljómgrunn. Hvert ríki hefur neitunarvald og „það vill enginn fórna sínu tungumáli".Þegar síðustu aðildarviðræður fóru fram var túlkanám við Háskóla Íslands eflt fyrir tilstilli ESB.Að mati Gauta steðja meiri ógnir að íslenskunni innanlands og frá bandarískum tæknirisum, en nokkurn tíma frá Brussel.Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.
Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.Thu, 18 Jun 2026 - 69 - Þorgerður Katrín biður eldra fólk að íhuga jáið fyrir ungu kynslóðina
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er gestur Gímalsins og ræðir áherslur í mögulegum viðræðum Íslands um aðild að Evrópusambandinu.
Hvaða ferill fer í gang ef þjóðin segir já í haust? Hverjir verða valdir til að skilgreina samsningsafstöðu Íslands? Hvað verður sett á oddinn í viðræðunum? Er rétti tíminn núna til að setja auðlindaákvæði í stjórnarskrá?Á Ísland að halda til streitu undanþágu til að stunda hvalveiðar? Af hverju mega útlendingar koma nálagt orkufrekum iðnaði en ekki sjávarútvegi? Er Evrópusambanið eins og Framsókn?Geta hagsmunir bænda og neytenda farið saman? Af hverju er lega Íslands mikilvæg fyrir Evrópu og Bandaríkin?Af hverju er mikilvægt fyrir efasemdafólk að segja já í haust?Textaútgáfa viðtalsins er aðgengileg á vef Gímaldsins.
Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.
Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Umsjón: Aðalheiður Ámundadóttir.Tue, 16 Jun 2026 - 68 - Breyting en ekki umbylting fyrir íslensk fyrirtæki ef Ísland gengi í ESB
Ef Ísland gengi í Evrópusambandið þá yrði það breyting fyrir íslensk fyrirtæki, en ekki endilega umbylting á einni nóttu.
Hugveitan Evrópustraumar vann skýrslu fyrir Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið þar sem greind eru áhrif aðildar á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og dregnir fram bæði kostir og gallar. Í samtali við Gímaldið segist höfundurinn vona að skýrslan sé gagnlegt framlag inn í umræðuna.
Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Hallgrím Oddsson hagfræðing og framkvæmdastjóra Evrópustrauma. Það helsta úr viðtalinu:
Skýrslan skoðar þrjú meginsvið: tolla, gjaldmiðil og regluumhverfi og skoðar hvað breytist fyrir íslensk fyrirtæki við ESB-aðildÍsland er í dag með 0% tolla á flestar vörur. Við aðild tækum við upp ytri tolla ESB sem eru hærri á ýmsum vöruflokkumStærsta tollbreytingin gagnvart þriðju ríkjum varðar Kína. Þar eru tollar ESB hærri en núverandi íslenskir tollarInni í tollabandalaginu sparast umsýsla og tollskýrslugerð, jafnvel þó tollar séu 0% nú kostar umsýslan sittVextir á fyrirtækjalánum eru yfir 10% á Íslandi en 3–6% í ESBUpptaka evru tekur langan tíma, þjóðirnar hafa tekið þrjú til nítján ár frá inngöngu í ESB þar til evra var tekin uppVerðstöðugleiki til lengri tíma yrði betur tryggður með evru en það sem þarf að breytast er hjá okkur, ekki hjá BrusselNetverslun frá ESB-löndum yrði mun auðveldari fyrir neytendur og minni hætta á tvísköttunBreytingarnar yrðu mest fyrir landbúnaðinn, þar myndi samkeppnisumhverfið breytast verulega en ekki er rýnt sérstaklega í þau mál frá sjónarhóli framleiðendaHöfundur telur vanta fleiri greiningar, einkum á áhrifum á landbúnað og einnig samanburð við önnur ríki sem gengið hafa í ESBEvrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.
Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.Sat, 13 Jun 2026 - 67 - Stóru samtökin þegja: ASÍ og SA munu ekki lýsa afstöðu til ESB-þjóðaratkvæðagreiðsluStór samtök á vinnumarkaði – ASÍ og SA – munu ekki lýsa afstöðu til ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágústSólveig Anna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Eflingar og einn forseta ASÍ, hefur lýst sinni skoðun en talar ekki fyrir hönd ASÍFélag atvinnurekenda birti skýrslu með kostum og göllum aðildar fyrir atvinnulífið en telur ekki hlutverk sitt að lýsa afstöðuÍslenska yrði opinbert tungumál ESB ef til aðildar kæmi og gæti styrkt stöðu sína, líkt og írskan gerðiFyrirspurnir og erindi til Brussel yrði hægt að senda á íslensku og þeim yrði svarað á íslenskuSjávarútvegurinn og ólík afstaða útgerðarmanna til ESB
Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir.
Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.
Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.Thu, 11 Jun 2026 - 66 - Útgerðarmenn með reynslu af ESB jákvæðari fyrir aðild
„Þeir sem enga hafa reynslu af ESB virðast hafa sterkustu skoðanirnar og sjá engin tækifæri,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson, viðskiptafræðingur og framkvæmdarstjóri á uppsjávarsviði hjá Brimi hf. Hjálmar er einn fárra Íslendinga sem þekkja rekstur í sjávarútvegi innan ESB af eigin raun. Í viðtali við Gímaldið rekur hann hvernig viðhorf hans til ESB breyttust, hvað aðild að Evrópusambandinu myndi þýða fyrir íslenskan sjávarútveg og hvers vegna honum finnst full ástæða til að láta reyna á aðildarviðræður.
Viðhorf útgerðarmanna til ESBSjávarútvegsstefna ESB og stefnuleysi ÍslandsÖnnur aðildarríki eiga auðlindirSérlausnir fínar en óþarfarTækifærin og hætturnarÁhugi erlendra fjárfesta ofmetinnÞunglamalegt Brussel eða hringlandaháttur ÍslandsReynslan af embættismönnum í Brussel Þjóðir með sérþekkingu hafa áhrif í BrusselTextaútgáfu viðtalsins má finna á vef Gímaldins.
Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.
Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Umsjón: Aðalheiður Ámundadóttir.Tue, 09 Jun 2026 - 65 - Vonin liggur í samtalinu – Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir
Þær hafa verið í forystu fyrir ólíka stjórnmálaflokka og segjast stundum rífast við sjónvarpið þrátt fyrir að vera hættar í pólitík. Í viðtali við Gímaldið ræða þær Hanna Birna Kristjánsdóttirog Svandís Svavarsdóttir um konur í pólitík, um erfiða en viðburðaríka tíma í borgarstjórn skömmu eftir hrun og það hvernig samvinna þvert á flokka skilar meiri árangri en átök.
Þáttastjórnandi er Eyrún Magnúsdóttir. Meðal þess sem kemur fram:
Hanna Birna og Svandís kynntust í borgarstjórn fyrir 20 árum og byggðu upp traust þvert á flokkslínurÞegar efnahagshrunið skall á 2008 var Hanna Birna borgarstjóri og staða borgarinnar slæm. Meirihluti og minnihluti unnu náið saman að lausn mála og traust á borgarstjórn rauk upp í kjölfariðÞær áttu gott samstarf og sameinuðust um breiðar línur: engar skattahækkanir, enginn niðurskurður á grunnþjónustu, engar uppsagnir starfsmanna Á árunum 2006-2010 myndaðist grunnur fyrir sameiginlega sýn á skipulag borgarinnar, þvert á flokkaKonur í stjórnmálum fá harðari gagnrýni og endast að meðaltali eitt kjörtímabil á meðan karlar endast þrjúNútíminn gerir stöðu kvenna enn erfiðari: samfélagsmiðlar verðlauna hraða og gífuryrði frekar en yfirvegun og málefnaleg rökÞær hafa áhyggjur af bakslagi í jafnréttismálum „Bakslagið er að þurfa að útskýra hluti sem við héldum að við værum komin með. Það er bakslagið."Réttur kvenna yfir eigin líkama eigi að vera í stjórnarskrá: „Það er nákvæmlega þetta sem er fyrst sótt að þegar bakslag kemur"Þær kalla eftir umræðu án upphrópana í Evrópumálum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Báðar telja þær þó að hagsmunum Íslands sé betur borgið í EES en ESBÞað er skortur á vinstri sjónarmiðum á Alþingi, segir Hanna Birna.Pólitíkin fer aldrei úr þeim: Svandís fylgist með óundirbúnum fyrirspurnatímum og Hanna Birna horfir stundum á borgarstjórnarfundi í beinni
Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.Wed, 03 Jun 2026 - 64 - Sirkabát #17: Dýrtíð á Íslandi
Hvað þýðir það þegar sagt er Ísland sé orðið 84 prósent dýrara en aðrar Evrópuþjóðir? Nýlega birti stéttarfélagið Viska greiningu sem sýndi fram ískyggilega þróun í verðlagi hér landi. Vörur og þjónustu umtalsvert dýrari hér landi en í nágrannaþjóðunum og verðlag hefur hækkað hraðar en í samanburðarlöndunum. Þáttastjórnendur fara ofan í saumanna á verðlagsmælingum og ályktunum sem draga má út frá alþjóðlegum samanburði.
Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson sjá um þáttinn
Viðmælandi er Gylfi Magnússon prófessorGímaldið gefur út Sirkabát. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Mon, 01 Jun 2026 - 63 - Áhrif ESB-aðildar fyrir budduna og bókhaldið
Gangi Ísland í ESB, kasti krónunni og taki upp evru, mun það hafa margvísleg áhrif á heimilin í landinu, fyrirtækin og ríkissjóð. En hvaða áhrif nákvæmlega? Við vitum það ekki fyrir víst. Það fer eftir því hvernig okkur semst og hvernig við höldum á spöðunum. Þingið spurði Hagfræðistofnun og í áliti stofnunarinnar má finna áhugaverðar vísbendingar um:
Aukin viðskipti og umsvifBreytingar á verðlagiLærra matvöruverðBetri lánakjörBreytta eftirspurn eftir vinnuafliBreytt landslag í hagstjórnÝmis áhrif fyrir lífeyrissjóði.Umsjón með þættinum hafa Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir.
Ítarleg umfjöllun fylgir þættinum á vef Gímaldsins.
Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Mon, 25 May 2026 - 62 - Gímaldið kíkir í pakkann: Samningsmarkmið utanríkismálanefndar
Gímaldið rýnir í nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar um ESB-tillögu ríkisstjórnarinnar. Í álitinu eru sett fram helstu markmið aðildarviðræðna við ESB, ákveði þjóðin að þær skuli hefja á ný. Í þættinum ræða Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir óvenjuleg einkenni nefndarálitsins og hvernig það bætir upp snubbótta tillögu utanríkisráðherra.
Dramatískar lýsingar í umsögnum fyrrverandi stjórnmálamannaÁhersla á sérbókun um yfirráð yfir auðlindumSérlausn um séríslenskt fiskveiðistjórnsvæðiHeimskautalandbúnaður og landbúnaðarstyrkirMiklir fjármunir frá Brussel til landsbyggðarUndanþágur um íslenska refinn, hvalinn og flugsamgöngurÍsland áfram herlaust og fullráða í varnarmálum
Meðal umræðuefna í þættinum:Ítarlegri umfjöllun er um efni þáttarins á vef Gímaldsins.
Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Sat, 23 May 2026 - 61 - R-listinn með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn
Er hin svokallaða hægri sveifla á landinu jafn skýr og af er látið, eða er kannski vinstri sveifla sem öllum er að yfirsjást? Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir halda áfram að rýna í kosningaúrslitin og velta upp áhugaverðum vinklum og spurningum:
Flokkar R-listans fá meira fylgi í Reykjavík en SjálfstæðisflokkurinnVelgengni Miðflokksins er birtingarmynd klofningsins frá Framsókn fyrir átta árumVinstri græn eru að stimpla sig aftur inn í umræðuna bæði í kosningunum og landsmálunumVinstri flokkarnir hafa enn vinninginn í landsmálunum og hafa bætt meira við sig en hægri flokkarnirHefði Samfylkingunni gengið betur með Guðmund Inga Þoroddsson innanborðs?Verður Jónas Már Torfason næsti varaformaður Samfylkingarinnar?Hvað gera kosningaúrslitin fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur og stöðu hennar í Sjálfstæðisflokknum?Er slakt gengi Framsóknar í kosningunum nýjum formanni flokksins að kenna?Tölfræðin sem stuðst er við í þættinum er frá Brynjólfi Gauta Guðrúnar Jónssyni, tölfræðingi þáttarins Sirkabát, en Brynjólfur heldur úti vefsíðunni metill.is
Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.Tue, 19 May 2026 - 60 - Kosningaúrslitin: Lesið á milli línanna
Hægri sveifla fór yfir landið í sveitarstjórnarkosningum. Gímaldið rýnir í niðurstöðurnar með tölfræðingnum Brynjólfi Gauta og stjórnmálaskýrandanum Aðalheiði Ámundadóttur. Í þættinum er meðal annars rætt um þetta:
Meirihlutar féllu víða um land og hægri sveiflan er staðreyndSamfylkingin er næst stærsti flokkurinn í sveitarstjórnum á eftir SjálfstæðisflokknumSjálfstæðismenn eru í sókn og Píratar horfnir af stjórnmálasviðinuSamfylkingin og fleiri borga fyrir mistök í kosningabaráttunniGuðlaugur Þór gæti séð sér leik á borði og nýtt niðurstöðuna til að fara í formannsslagMiðflokkurinn og Viðreisn festa sig í sessi í flokkakerfinuSilja Sóley Birgisdóttir er ný stjarna í stjórnmálumSanna Magdalena kann að hafa komið Vinstri grænum til bjargar í ReykjavíkUmsjón með þættinum hefur Eyrún Magnúsdóttir
Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Sun, 17 May 2026 - 59 - Næsti kafli í Reykjavík og það sem við hefðum átt að tala meira um
Síðasti þátturinn í röðinni Börn og bílastæði, kosningaumfjöllun Gímaldsins, er kominn í loftið. Í þættinum ræða Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir útlitið fyrir Reykjavík og málin sem þær hefðu viljað meiri umræðu um fyrir kosningar.
Töfratalan 12 sem allt snýst umSviptingar í síðustu könnun fyrir kosningarMeirihlutaþreifingar gætu orðið meira spennandi en kosningarnarHvernig munu hægri vindar fara með ReykjavíkHvað verður um BorgarlínuSorphirðan og ítalska mafíanViðkvæmustu hóparnir sem gleymdustUmsjón þáttar: Erla Hlynsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir
Börn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Fri, 15 May 2026 - 58 - Við þurfum að geta rekið samfélagið fyrir okkur öll
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir lifir og hrærist í samfélagi jaðarsettra hópa. Hún er framkvæmdastjóri Samhjálpar og stjórnarkona í samtökum gegn fátækt og félagslegri einangrun. Hún segir það tvennt ólíkt að reka fyrirtæki og að reka samfélag, og að Reykjavík spili í annarri deild en önnur sveitarfélög þegar kemur að þjónustu við jaðarsett fólk.
Erla Hlynsdóttir ræðir við Guðrúnu Ágústu í nýjasta þætti af Börn og bílastæði þar sem fjallað er um ábyrgð samfélags, pólitíkina í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, kaffistofu Samhjálpar og svörin sem EAPN fékk frá framboðunum um áherslur í málefnum fátæks fólks.
Börn og bílastæði er kosningaþáttur Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Fri, 15 May 2026 - 57 - Eru tölur í kosningabaráttu til að upplýsa eða sannfæra?
Í þættinum fara Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson og Georg Gylfason úr hlaðvarpinu Sirkabát yfir nokkrar áhugaverðar tölur sem tengjast sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu ásamt Eyrúnu Magnúsdóttur.
Íbúar höfuðborgarsvæðisins eyða tæpum fjórum sólarhringum á ári í umferð – en er þetta stór tala? Við hvað á að miða?Hvernig stendur Reykjavík fjárhagslega og hvaða sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu sker sig úr þegar kemur að fjárhagsstöðu?Aðeins eitt sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu nær að koma meira en helmingi eins árs barna í leikskólaHvaða forsendur gefa menn sér þegar þeir ramma inn vandamálin og hvernig eru tölur notaðar til að sannfæra frekar en upplýsa?Góð ráð til kjósenda þegar leggja á mat á tölur sem varpað er fram í kosningabaráttuBörn og bílastæði er kosningaþáttur Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Thu, 14 May 2026 - 56 - Á borgin að fela einkaðilum verkefnin eða sjá um þau sjálf?
Í þættinum er rætt við prófessor í stjórnmálafræði um þá leið sveitarfélaga að útvista verkefnum til einkaaðila.
Hvaða flokkar vilja fela einkaaðilum verkefnin í Reykjavík?Hvaða flokkar vilja að borgin vinni öll verk sjálf? Kostnaður við útvistun verkefna er oft vanmetinn og sparnaður ofmetinnEftirliti með einkaaðilum sem veita opinbera þjónustu er ábótavant Kjörnir fulltrúar missa yfirsýn og vald yfir málaflokkum sem útvistað erGestur: Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði.
Umsjón: Aðalheiður ÁmundadóttirBörn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Wed, 13 May 2026 - 55 - Hinsegin bókmenntir í brennidepli á bókmenntahátíðinni Queer Situations
Ásta Kristín Benediktsdóttir bókmenntafræðingur hefur sérhæft sig í hinsegin bókmenntum. Hún segir bókmenntir ekki hlutlausar heldur sýni þær okkur ákveðna mynd af samfélaginu.
Hinsegin bókmenntahátíðin Queer Situations fer fram í maí og þar er Ásta með erindi sem ber yfirskriftina: Hver má skrifa (um) hinsegin bókmenntir? Vangaveltur um væntingar og tjáningarfrelsi.
Erla Hlynsdóttir ræðir við Ástu í nýjasta þætti Bókapressunnar.
Hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Wed, 13 May 2026 - 54 - Málefnin sem kjósendur leggja áherslu á — Skipulagsmál á toppnum
Skipulagsmál og málefni leik- og grunnskóla eru þeir tveir málaflokkar sem flestir íbúar leggja áherslu á vegna komandi sveitarstjórnarkosninga, hvort sem litið er til Reykjavíkur, nágrannasveitarfélaga borgarinnar, eða íbúa á landsbyggðinni. Þetta sýna niðurstöður Þjóðmálakönnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um viðhorf til málefna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí.
Rúnar Vilhjálmsson, prófessor í félagsfræði, lét gera könnunina og hefur unnið úr niðurstöðunum, en honum hefur fundist vanta umræðu í aðdraganda kosninga um hvað kjósendum sjálfum finnst mikilvæg málefni.
Meðal þess sem spurt var um er ánægja með þjónustu sveitarfélaganna, afstöðu til Borgarlínu og afstöðu til þéttingar byggðar í Reykjavík. Erla Hlynsdóttir ræðir við Rúnar um niðurstöðurnar.
Börn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið.
Mon, 11 May 2026 - 53 - Gísli Marteinn: Reykjavík á að bera sig saman við aðrar höfuðborgir
Margt kemur Gísla Marteini Baldurssynispánskt fyrir sjónir í umræðu flokkanna um skipulagsmál í Reykjavík. Í þættinum Börn og Bílastæði er rætt við Gísla Martein um Reykjavík í samanburði við aðrar borgir og þau öngstræti sem umræðan um skipulagsmál er komin í í aðdraganda kosninga.
Er raunhæft að bera Reykjavík saman við aðrar borgir? Hvernig væri Reykjavík ef þéttingin væri eins og í París?Af hverju töldu Barselónabúar að þar væri ekki hægt að hjóla?Stærð borga máli og almenningssamgöngurMikilvægi þéttingar byggðar og óreiðan í umræðunniFara mislæg gatnamót og blómleg hverfi saman?Umsjónarmaður þáttarins er Aðalheiður Ámundadóttir.
Á Gímaldinu má lesa útdrátt úr hlaðvarpsviðtalinu.Börn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja tilfrjálst framlag.
Sat, 09 May 2026 - 52 - Bannorðin í stefnuskrám flokkanna og sundlaugar ofar Sundabraut
Rýnt í stefnuskrár flokkanna í borginni. Eru þær innantóm loforð eða fullar fyrirheitum um það sem koma skal?
Sundlaugar oftar nefndar en Sundabraut í stefnuskránumNokkur bannorð virðast vera í stefnum flokkannaAllir vilja bæta leikskóla en greinir á um það hvort rekstrarform leysir vandaFlokkar sem hafa stutt samgöngusáttmála hafna honum korter í kosningar
Þættinum stýra Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir.
Fjallað er um:Börn og bílastæði er kosningaþáttur Gímaldsins.
Hann er öllum opinn en við hvetjum þig til að gerast áskrifandi. Það tekur enga stund <3
Þú getur líka lagt til frjálst framlag
Þú getur líka skráð þig fyrir reglulegu fréttabréfi GímaldsinsWed, 06 May 2026 - 51 - Sirkabát #16: Mælingar á atvinnuleysi
Hvort eru atvinnulausir rúmlega níu þúsund eða nálega átján þúsund talsins? Tvær stofnanir hafa umsjón með að telja fjölda hverju sinni, Vinnumálastofnun og Hagstofa Íslands. Mælingar beggja stofnana á atvinnuleysi fylgjast venjulega að. Nú ber hins vegar svo við að munur á mælingunum hefur aukist mikið á sama tíma og fólki án vinnu hefur fjölgað vegna kólnunar í hagkerfinu.
Umsjón: Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson.Mon, 04 May 2026 - 50 - „Það er enginn að segja að allir eigi að hætta að keyra“ – Bílastæði og borgarumhverfi
Tölum um bílastæði! Bílastæði hafa verið í brennidepli í kosningabaráttu á höfuðborgarsvæðinu. En hvað eru bílastæði? Hvaða tilgangi þjóna þau í borgarumhverfi og hvaða áhrif hefur það ef við fjölgum þeim stöðugt?
Eyrún Magnúsdóttirræðir við sérfræðinga um fyrirbærið bílastæði og skoðar hugmyndir annarra borga um bílastæði og tengsl þeirra við skipulag borga en einnig við líðan íbúa og heilsu.
Viðmælendur í þættinum eru Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, aðjúnkt í skipulagsfræði við LBHÍ og fyrrverandi forstjóri Skipulagsstofnunar, og Herdís Sigurgrímsdóttir, stjórnmálafræðingur og ráðgjafi á umhverfis- og skipulagssviði hjá VSÓ ráðgjöf.Börn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er aðgerast áskrifandi að Gímaldinuog styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið.
Sat, 02 May 2026 - 49 - Er umræðan um borgina á villigötum? – Kosningaþátturinn Börn og bílastæði hefur göngu sína
Kosningaþáttur Gímaldsins rúllar af stað. Hann heitir Börn og bílastæði!
Stór hluti verkefna sveitarfélaga snýst um börn, velferð þeirra, menntun og lífsgæði. Miðað við umræðu fyrir þessar kosningar mætti þó halda að börn þrái fyrst og fremst eitt: bílastæði!
Í þáttunum verða málefnin í forgrunni en frambjóðendur fá frí. Í fyrsta þætti fara Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir yfir fjölbreyttan vettvang kosningabaráttunnar, hlutverk fjölmiðla í þessu nýja landslagi. Þær spyrja hvort þolinmæði fyrir sérhagsmunum sé að aukast aftur eftir að óþol fyrir slíku rauk upp úr öllu valdi í kjölfar efnahagshrunsins og hvaða þjónustu fjölmiðlar ættu helst að veita kjósendum til að undirbúa þá fyrir kosningarnar. Á að láta frambjóðendum og jafnvel hagsmunaaðilum eftir að skilgreina vandamálin sem þarf að leysa? Eða eiga fjölmiðlar kannski frekar að rýna í málefnin, greina þau og skýra út.Hægt er að hlusta á fyrsta þátt Barna og bílastæða í spilaranum hér efst í fréttinni og á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Börn og bílastæði er hugsaður fyrir forvitið fólk sem er þreytt á upphrópunum og rifrildum og leitar í staðinn að dýpri skilningi á þeim málefnum sem eru í brennidepli fyrir kosningarnar og reyndar líka málefnum sem fáir eru að tala um en skipta íbúa máli.
Þættirnir verða öllum opnir en við hvetjum þig til að gerast áskrifandi að Gímaldinu eða leggja til frjálst framlag
Tue, 28 Apr 2026 - 48 - „Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið“ – Umsögnin um Græna gímaldið sem aldrei átti að fara í loftið
„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið á Íslandi,“ voru orð sem Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt lét falla um Græna gímaldið og fóru fyrir mistök út með umsögn um verkefnið. Í viðtali sem birt er í hlaðvarpi Gímaldsins er rætt við Borghildi um tilurð þessara orða og viðbrögð við þeim innan borgarkerfisins en einnig um Græna gímaldið og um þróun í skipulagsmálum.
Umsögn með orðalaginu átti aldrei að fara í loftið og sú sem skrifaði þessi orð taldi að þeim yrði slepptÍ tölvupósti var sagt að arkitektinn sé „að láta danskan arkitektúr hafa allt of mikil áhrif“ á sigBorghildi hafði verið sagt upp störfum hjá borginni þegar umsögnin var skrifuð og starf hennar lagt niðurUnnið er með byggingarheimildir eins og óveiddan kvótaHröð uppbygging samhliða eftirgjöf í byggingarreglugerð hefur dregið úr gæðum í nýbyggingumMilliliðir milli framkvæmdaaðila og skipulagsyfirvalda hafa bæst við á undanförnum áratugGera þarf kröfu um að hönnun bygginga liggi fyrir fyrr í ferlinuHagar hefðu getað sýnt meiri metnað í uppbyggingu á byggingunni sem nefnd hefur verið Græna gímaldiðInnanhúss hjá borginni var Græna gímaldið í upphafi kynnt sem „höfuðstöðvar stórfyrirtækis“
Í þættinum, sem Gímaldið gefur út, kemur meðal annars fram:Þátturinn er öllum opinn en Gímaldið – sem að hluta til dregur nafn sitt af Græna gímaldinu – er fjölmiðill í áskrift.
Hlustaðu á þáttinn ...og ef þú vilt meira svona efni þá hvetjum við þig til að gerast áskrifandi eða leggja til frjálst framlag á www.gimaldid.isSat, 18 Apr 2026 - 47 - Sigríður Andersen ræðir ESB-tillögu stjórnarinnar og stöðuna í stjórnarandstöðuTue, 14 Apr 2026
- 46 - Birgir Ármannsson tekur til máls um fundarstjórn forseta
Hvaða herrum þjónar forseti Alþingis og hver ræður dagskrá þingsins í raun og veru? Hvernig býr meirihlutinn sig undir málþóf og hvernig heldur forseti sönsum þegar allt verður vitlaust? Þessum spurningum og mörgum öðrum svarar Birgir Ármannsson, fyrrverandi þingforseti í viðtali um leikjafræðina á Alþingi.
Thu, 09 Apr 2026 - 45 - Þjálfuð til að berjast gegn eigin þjóð: Þórdís Kolbrún segir frá skipulögðum barnsránum
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ræðir skipulögð barnsrán Rússa í Úkraínu; Um börnin sem numin hafa verið á brott og eru rænd uppruna sínum með heilaþvotti, hvernig unnið er að endurheimt þeirra og hvernig Evrópa og alþjóðasamfélagið geti og eigi að bregðast við.
Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi hér
Thu, 02 Apr 2026 - 44 - Heppinn að geta einbeitt sér að loftslagsmálumSat, 28 Mar 2026
- 43 - Sirkabát #15: Skoðanakannanir
Rík þörf er á umræðu um gæði þeirra skoðanakannana sem birtast víða í opinberri umræðu. Þetta segir Ólafur Þór Gylfason, sviðstjóri markaðarannsókna hjá Maskínu, en hann settist niður með þáttastjórnendum Sirkabát og ræddi um úrtaksrannsóknir hér á landi og erlendis og þær breytingar sem hafa átt sér stað á undanförnum áratugum. Hann segir sérstöðu Íslands í þessum efnum að hverfa og ræðir áskoranir sem því fylgja.
Þátturinn er opinn á helstu hlaðvarpsveitum. Sirkabát er hlaðvarp sem rýnir í tölur að baki fréttum og er gefið út af Gímaldinu.
Gímaldið er áskriftarmiðill. Hægt er að styðja við bakið á þáttagerð Sirkabát með því að gerast áskrifandi hér.Wed, 25 Mar 2026 - 42 - Pawel Bartoszek: Stuðningsfólk ESB geti lært af baráttunni gegn Brexit
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar, ræðir Evrópumálin, sigursögu Póllands og Brexit. Hann telur óttann við að glata fullveldinu í viðskiptabandalögum fela í sér minnimáttarkennd. Öflug fullvalda ríki innan ESB beri vott um hið gagnstæða. Pawel segist ekki kvíða umræðu næstu mánaða. Ísland sé rótgróið lýðræðisríki og þjóðin eigi sér langa og ríka umræðuhefð.
Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við Pawel Bartoszek.Gímaldið er áskriftarmiðill. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli.
Áskriftarvefur GímaldsinsSat, 07 Mar 2026 - 41 - Davíð Þorláksson: Það verður engin sátt um Borgarlínu fyrr en hún byrjar að virka
Davíð Þorláksson segist sjaldan heyra nýja spurningu eða hugmynd sem tengist Borgarlínunni. Vangaveltur og ýmis konar gagnrýni sem fram komi um Borgarlínuna sé almennt eitthvað sem hafi fyrir löngu verið svarað. Hann segir eðlilegt að fólk spyrji spurninga og það sé líka eðlilegt að verkefnið sé ekki endilega sérlega vinsælt. Innviðaverkefni, af þeirri stærðargráðu sem Borgarlínan er, njóti almennt ekki hylli fyrr en fólk sjái þau virka. Davíð hefur verið framkvæmdastjóri Betri samgangna undanfarin fimm ár en nýverið var hann ráðinn í starf framkvæmdastjóra Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins, sem er nýtt félag utan um rekstur Strætó og Borgarlínunnar þegar þar að kemur.
„Það verður sátt um verkefnið þegar að fyrsta lotan er komin og byrjuð að virka og fólk sér áhrifin sem að þetta mun hafa. Ég geri mér engar væntingar um að það verði einhver mikil víðtæk sátt um þetta fyrr en að það gerist,“ segir Davíð í viðtali við Gímaldið um Borgarlínuna, nýtt skipulag almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu og umræðuna um verkefnið.
Eyrún Magnúsdóttir ræðir við hann. Davíð Þór Guðlaugsson tók myndir.
Gímaldið er áskriftarmiðill. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli.
Áskriftarsíða GímaldsinsFri, 06 Mar 2026 - 40 - Sirkabát #14: Hvað er verðbólga eiginlega að mæla?
Í janúar 2026 uppfærði Hagstofan flokkunarkerfi vísitölu neysluverðs yfir í alþjóðlegan staðal sem nefnist COICOP 2018. En hvað þýðir það eiginlega – og hvernig er verðbólga mæld? Ásta Jenný Sigurðardóttir, teymisstjóri vísitölu neysluverðs á Hagstofunni, útskýrir hvernig neyslunni er skipt í flokka og hvaðan vogir mismunandi útgjaldaliða koma.
Ef þú sérð tölu í fréttum og vilt vita meira, sendu okkur línu á sirkabat@gimaldid.is.Thu, 05 Mar 2026 - 39 - Sálfræðilegi samningurinn á íslenskum fjölmiðlamarkaði
Þorsteinn Hjálmsson ræðir meistaraverkefni sitt í mannauðsstjórnun við HÍ: „Nei, en ég vinn á Ríkisútvarpinu. Það eru hinir sem eiga erfiðara.“ Upplifun blaða- og fréttamanna á sálfræðilega samningnum.
Þorsteinn segir að samningurinn sé sterkur í faginu en hann mótist á ólíkan hátt eftir því hvort blaðamennirnir starfa á RÚV eða einkareknum fjölmiðlum.Mon, 02 Mar 2026 - 38 - Bókapressan: Anna Lea Friðriksdóttir nýr formaður FÍBÚT
Bækur hafa alltaf verið stór þáttur í lífi Önnu Leu Friðriksdóttur sem nýverið var kjörin formaður Félags íslenskra bókaútgefenda fyrst kvenna.
„Við vitum það að bóklestur fer minnkandi. Það er mest rætt um börnin og þeirra bóklestur. En ég held að yngstu börnin séu í raun meiri fyrirmyndir fyrir fullorðna heldur en fullorðnir fyrir börnin,“ segir Anna Lea í viðtali við Bókapressuna. Hún segir að fullorðna fólki megi gjarnan skoða eigin bóklestur en ekki alltaf bara einblína á börnin.
Gímaldið gefur út Bókapressuna, hlaðvarp um bækur og allt sem þeim tengist.
Það má alltaf hafa samband við okkur með því að senda póst á ritstjorn@gimaldid.is.
Við minnum á að Gímaldið er áskriftarmiðill. Hver einasta áskrift skiptir okkur máliMon, 02 Mar 2026 - 37 - Sirkabát #13: Hvernig notum við gögn í afbrotafræði?
Hvernig eru afbrot í samfélaginu mæld og metin?
Fjölbreyttum upplýsingum er safnað um afbrot sem gefa vísbendingar um fjölda og þróun þeirra í samfélaginu. Haldið er utan um fjölda handtaka, ákærðra og fjölda sem sitja í gæsluvarðhaldi eða afplána dóm í fangelsi. Þrátt fyrir það ná gögn sem til eru ekki yfir nema brot af þeim afbrotum sem framin eru hverju sinni, flest afbrot eru hvergi tilkynnt og rata því ekki í opinber gögn.
Þetta kemur fram í nýjasta þætti Sirkabát þar sem rætt er við Margréti Valdimarsdóttur, dósent í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands, um túlkun gagna um afbrot. Þannig séu ýmis atriði sem hafa þurfi í huga þegar litið er á tölur úr opinberum gögnum yfir lengri tíma.
Sat, 28 Feb 2026 - 36 - Sirkabát #12: Afbrot og innflytjendur
Tölur um ákærur á hendur erlendum ríkisborgurum hér á landi hafa verið nokkuð til umræðu eftir að dómsmálaráðuneytið sendi frá svar við fyrirspurn þingmanns sem reyndist innihalda reiknivillu, líkt og Gímaldið sagði frá í frétt um málið. Hvað má lesa úr þessum tölum og hvaða aðferðum er hægt beita til að skoða gögnin í réttu samhengi? Þetta er rætt í nýjasta þætti Sirkabát.
Gímaldið er nýr áskriftarmiðill sem meðal annars gefur út hlaðvarpið Sirkabát. Hægt er að gerast áskrifandi hér.
Hver einasta áskrift skiptir okkur máli <3
Umsjón: Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson.Tue, 24 Feb 2026 - 35 - Pólitík og fjölmiðlar – vikuspjall
Blaðamenn Gímaldsins fara yfir mál sem fjallað hefur verið um í vikunni. Væringar innan VG og rekstrarstuðningur við fjölmiðla eru meðal þess sem er til umfjöllunar.
Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift, hægt er að lesa eða hlusta
Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir.Sat, 21 Feb 2026 - 34 - Nágrannar: „Við erum svona lukkudýr“
Nágrannar eru nýir hlaðvarpsþættir Gímaldsins sem Erla Hlynsdóttir stýrir. Gestur hennar að þessu sinni er Anna Ólafsdóttir Björnsson sem hefur átt fjölmarga nágranna í gegn um tíðina, jafnvel þó hún hafi nú búið á sama stað í 45 ár. Anna talar um sig sem ákveðið lukkudýr í nágrannamálum og aldrei átt leiðinlega nágranna, ekki einu sinni nágranninn sem hún var fyrirfram vöruð við en reyndist síðan hinn besti karl. Hún segir frá áhugaverðum sögum af samskiptum við nágranna fyrr og síðar.
Wed, 18 Feb 2026 - 33 - Sirkabát #11: Verðbólgan og pennastrikið
Árið hófst á vonbrigðum þegar árleg verðbólga skaust úr 4,5% í 5,2% á einum mánuði. En hvað liggur að baki? Þáttastjórnendur Sirkabát kafa ofan í vísitölu neysluverðs, skoða flokkana sem ýttu henni upp og reikna út hvað hefði gerst ef lagabreytingar á vörugjöldum ökutækja hefðu ekki tekið gildi um áramótin.
Niðurstaðan: Gagnrýnin á gjaldahækkunina á við, en svartsýnisspáin kannski ekki. Lestu lengri greiningu Sirkabát á verðbólgutölum á Gímaldinu.
Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli og hjálpar okkur að halda úti vandaðri umfjöllun.Sástu tölu í fréttum sem þú vilt skilja betur? Sendu okkur línu á sirkabat@gimaldid.is
Umsjón: Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson.Thu, 12 Feb 2026 - 32 - Sirkabát #10: Innflytjendur og lífeyrisgreiðslur
Nýlegar fréttir hafa bent á mikla fjölgun erlendra lífeyrisþega. En hvaða samhengi vantar? Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur hjá Hagstofunni bendir á að þótt fjöldinn hafi aukist hefur hlutfallið haldist lágt: aðeins 3,6% útlendinga á vinnumarkaði þiggja örorku- eða endurhæfingarlífeyri, samanborið við 18% Íslendinga. Gott dæmi um mikilvægi þess að greina tölur áður en þeim er slegið upp.
Sirkabát er hlaðvarp sem rýnir í tölurnar í fréttum og fréttirnar í tölum.
Þáttastjórnendur Sirkabát eru Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson tölfræðingur og Georg Gylfason sagnfræðingur.Sirkabát er þáttur sem Gímaldið gefur út. Hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu hér. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli.
Wed, 11 Feb 2026 - 31 - Barnaníðsefni ekki lengur bara í lokuðum hópum á netinu
Hallur Hallsson, rannsóknarlögreglumaður hjá kynferðisbrotadeild, ræðir störf deildarinnar og alþjóðlegt samstarf til að finna og greina barnaníðsefni á netinu þar sem markmiðið er að koma þolendum til bjargar.
Erla Hlynsdóttir ræðir við hann.Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift. Þú getur keypt áskrift og verið þannig með í að lýsa upp samfélagið.Hver einasta áskrift skiptir okkur máli.
Mon, 09 Feb 2026 - 30 - Hvað er eiginlega þetta ICE?
Fjöldamótmæli gegn aðgerðum ICE hafa farið fram víða um Bandaríkin að undanförnu. Ríkisstjórn Trump hefur lagt mikla áherslu á fjölgun ICE-liða og þjálfunartími þeirra styttur til að koma sem flestum á göturnar sem fyrst. Þá hefur Trump snaraukið fjárframlög til ICE.
Hvað þarf til að komast inn í ICE? Hversu miklum fjármunum er veitt í þetta fyrirbæri og hvað gerist næst í Bandaríkjunum?
Erla Hlynsdóttir blaðamaður fjallar um ICE – Innflytjenda- og tollaeftirlitið alræmdaGímaldið er áskriftarmiðill
Hver einasta áskrift skiptir okkur máli
Þú getur keypt áskrift hérWed, 28 Jan 2026 - 29 - Lilja Alfreðs: Framsókn þarf að komast á eldhúsborð þjóðarinnar að nýju
Lilja Dögg Alfreðsdóttir hefur tilkynnt um framboð til formanns Framsóknarflokksins, en hún er varaformaður flokksins.
„Framsóknarflokkurinn á að mínu að mati að sækja fram og koma með lausnir," segir Lilja Alfreðsdóttir í viðtali við Gímaldið. Lilja nefnir til dæmis lausnir sem Framsókn geti talað fyrir á vettvangi efnahagsmála. „Ég viðurkenni að efnahagsstefna Kristrúnar kemur mér á óvart,“ segir Lilja sem telur viðbrögð ríkisstjórnarinnar, til að ná niður verðbólgu, ekki trúverðug.
Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við Lilju í hlaðvarpi fyrir Gímaldið.Gímaldið er nýr áskriftarmiðill. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli.
Þú getur gerst áskrifandi hérTue, 27 Jan 2026 - 28 - Dagur B. Eggertsson: Norðurlöndin búa sig undir stríð
„Norðurlöndin eru að búa sig undir stríð, ekki bara með hernaðaruppbyggingu heldur einnig með öðrum viðbúnaði til dæmis á sjúkrahúsum og með birgðasöfnun,“ segir Dagur B. Eggertsson þingmaður í viðtali við Gímaldið.
„Maður vill ekki mála upp of dökka mynd en þetta er svolítið eins og í almannavörnunum að við verðum að vera samt heiðarleg með það sem getur teiknast upp og axla ábyrgð á að búa okkur undir það. Hluti af því er að fólk átti sig á því að í þessum breytta heimi getum við ekki bara legið á bakinu og vonað það besta,“ segir hann í viðtalinu.
Dagur er formaður Íslandsnefndar NATO-þingsins og átti sæti í þingmannanefnd þeirri sem lagði grunn að öryggis og varnarstefnu sem er til meðferðar á Alþingi. Áður en Dagur settist á þing var hann um árabil formaður Almannavarnarnefndar. Gímaldið ræðir við Dag um heimsmálin, vestræna samvinnu, sambandið við Bandaríkin og Evrópu, vígbúnað Norðurlandanna og hvernig Íslendingar eiga að fara að því að verjast mögulegum ófriði. Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við Dag.
Gímaldið er nýr fjölmiðill. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli.
Þú getur tekið þátt í að lýsa upp samfélagið með því að kaupa áskriftSat, 24 Jan 2026 - 27 - Sirkabát #9: Hugtökin hægri og vinstri sveiflast eftir deilumálum stjórnmála hverju sinni
Hvað þýðir það að vera hægri- eða vinstrisinnuð í stjórnmálum? Viktor Orri Valgarðsson, doktor í stjórnmálafræði, útskýrir uppruna hugtakanna og hvernig merking þeirra breytist eftir tímabilum, löndum og deilumálum í stjórnmálum hverju sinni.
Sirkabát er hlaðvarp sem Gímaldið gefur út. Í þáttunum er rýnt á bak við fréttir, gjarnan í tölfræði eða annað sem er til þess fallið að dýpka umræðuna.
Gímaldið er fjölmiðill í áskrift – þú getur stutt við okkur með því aðkaupa áskriftog fengið þannig aðgang að öllu efni Gímaldsins.
Hver áskrift skiptir máli.
Wed, 21 Jan 2026 - 26 - Ingibjörg Isaksen kallar eftir samvinnu þvert á flokka í málefnum barna
Í viðtali við Gímaldið fer Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins yfir stöðu flokksins, framtíðarsýn sína fyrir flokkinn og pólitíkina í þinginu. Ingibjörg hefur lýst yfir framboði til formanns flokksins. Sigurður Ingi Jóhannsson hættir sem formaður á flokksþingi Framsóknarflokksins í febrúar.
Ingibjörg segir í viðtalinu að tækifæri felist í tómarúminu á vinstri væng stjórnmálanna. „Ef við horfum á þetta pólitíska litróf sjáum við að flokkar sem eru hægra megin eru komnir töluvert langt til hægri eins og Miðflokkurinn sem er stofnaður í rauninni út frá Framsókn. Hann er kominn jafnvel hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn í einhverjum málum,“ segir Ingibjörg og bætir við: „Við erum ekki alltaf þar. Við erum frekar að leita til vinstri. Við sjáum það bara í rauninni í alls konar málum þegar kemur að til dæmis innflytjendamálum.“
Undanfarnar vikur hefur verið beðið eftir yfirlýsingum frá Willum Þór Þórssyni og Lilju Alfreðsdóttur um formannsframboð en Ingibjörg hefur nú brotið ísinn og er fyrst til að tilkynna framboð til formanns.
Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift.
Áskriftir gera okkur kleift að vinna að því að byggja upp fjölmiðil sem lýsir upp samfélagið.
Gerast áskrifandi að Gímaldinu.Tue, 20 Jan 2026 - 25 - Nágrannar: Óskeikult ráð að vera bara næs
Nágrannar er nýtt hlaðvarp úr smiðju Gímaldsins sem Erla Hlynsdóttir stýrir.
Við ætlum að fjalla um nágranna frá ýmsum hliðum. Við eigum öll nágranna. Þeir búa í búsinu við hliðina á okkur, í íbúðinni fyrir neðan okkur eða uppi á næstu hæð. Sumum nágrönnum kynnumst við en öðrum ekki. Við kynnumst broti af lífi nágranna okkar og þeir broti af okkar.
Guðríður Haraldsdóttir er viðmælandi fyrsta þáttar. Hún segir það óskeikult ráð að vera bara næs við nágranna og bjóða góðan daginn á ganginum. Hún segir meðal annars frá því þegar sérsveitin bankaði upp á hjá henni til að fá að síga niður á næstu svalir.
Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift. Við viljum halda áfram að stunda blaðamennsku, birta áhugavert efni, lýsa upp samfélagið. Þú getur tekið þátt með því að gerast áskrifandi. Þú getur líka lagt til frjálst framlag. Farðu inn á gimaldid.is og veldu að vera með í að halda samfélaginu upplýstu.
Sat, 17 Jan 2026 - 24 - Einhverf Barbie og ósýnilegu stelpurnar
Einhverf Barbie er ekki bara dúkka heldur tákn um sýnileika og viðurkenningu í heimi þar sem stelpur með einhverfu hafa lengi verið ósýnilegar.
Erla Hlynsdóttir fjallar um einhverfa Barbie-dúkku sem er nýkomin á markað.
Pistillinn birtist á áskriftamiðlinum Gímaldinu.
Þú getur verið með í að styðja við Gímaldið með því aðkaupa áskrift eða leggja til frjálst framlag.
Wed, 14 Jan 2026 - 23 - Þjóðfélagið þarf að geta bognað án þess að brotna – Víðir Reynisson í viðtali um nýja stefnu í öryggis- og varnarmálum
Þingmaðurinn Víðir Reynissonhefur víðtæka reynslu á sviði almannavarna og þjóðaröryggis. Aðalheiður Ámundadóttirblaðamaður ræðir við hann um viðbúnað á Íslandi ef til stríðsátaka kæmi og um nýja stefnu utanríkisráðherra í öryggis- og varnarmálum.
Víðir starfaði við almannavarnir í rúma tvo áratugi áður en hann tók sæti á þingi, síðast sem sviðsstjóri almannavarna hjá embætti ríkislögreglustjóra. Þá hefur hann setið í almannavarnanefnd ESB og verið formaður vinnuhóps EFTA um almannavarnir ásamt því að hafa setið í fjölda nefnda og ráða hins opinbera um almannavarnir og öryggismál.
Víðir bendir á að þegar fyrstu almannavarnalög voru sett hér á landi árið 1962 hafi þau nær alfarið verið miðuð út frá hernaðarógn fyrstu árin, enda hafi Kalda stríðið, Kúbudeilan og kjarnorkuógn verið hluti af veruleika þess tíma. Það hafi ekki verið fyrr en árið 1967 að kafli um náttúruhamfarir var tekinn inn í lögin, en mest hefur reynt á þann hluta undanfarna áratugi. „En það er alveg ljóst að síðustu misserin hefur orðið gjörbreyting á því hvernig við þurfum að hugsa þetta og það hefur verið reynt að endurspegla það í samstarfi stofnana og skipulagi mála. Þessi stefna á að vera vegvísir í því hvernig við höldum áfram með þau verkefni og jafnvel tökum upp ný sem, sem endurspeglar bara þá þörf okkar að geta brugðist við mismunandi aðstöðu í heiminum hverju sinni.“
Þau ræða meðal annars um áfallaþol en Víðir segir að best sé að skýra það út með líkingu við málm. Þjóðfélagið þurfi að þola áföll að því marki að þau geti bognað án þess að brotna.
Umfjöllun Gímaldsins um öryggis- og varnarmálastefnu má finna á gimaldid.is.
Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift.
Áskriftir gera okkur kleift að vinna að því að byggja upp fjölmiðil sem lýsir upp samfélagið.
Gerast áskrifandi að Gímaldinu.Sat, 10 Jan 2026 - 22 - Sirkabát #8: Greindu Betur
Ár hvert safnast 14-19 ára ungmenni saman og rýna í tölur og gögn í keppninni Greindu betur. Keppnin hefur vaxið mikið frá því hún hófst árið 2021.
Keppninni er skipt upp í tvo aldursflokka eftir námsstigi og keppnisefnið er sniðið að getu hvers flokks. Tilgangurinn er að efla upplýsingalæsi grunn- og framhaldsskólanema.
Kristín Ingvarsdóttir og Arndís Vilhjálmsdóttir hjá Hagstofunni ræða um keppnina í nýjasta þættinum af Sirkabát.
Thu, 08 Jan 2026 - 21 - Tala ársins 2025
Hver er tala ársins 2025?
Sirkabát rýnir í tölur ársins með gestum þáttarins. Tölur ársins segja margar og ólíkar sögur. Sirkabát fékk nokkra einstaklinga til að rýna í árið, velja sína uppáhalds tölu og deila með hlustendum.
Arndís Vilhjálmsdóttir, teymisstjóri notendaþjónustu hjá Hagstofunni
Emil Dagsson, doktorsnemi í hagfræði við Háskóla Íslands og starfsmaður deildar rannóknar og spár hjá Seðlabanka Íslands
Kolbeinn Stefánsson, félagsfræðingur og dósent við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands
Ingvar Örn Ákason, verkefnastjóri Handboltapassa HSÍ
Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Miðstöð í lýðheilsuvísindum
Hafsteinn Einarsson, nýdoktor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Eyrún Magnúsdóttir, blaðamaður og stofnandi Gímaldsins
Karen Kjartansdóttir, samskiptafulltrúi á VeðurstofunniÞáttastjórnendur eru Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson
Tue, 30 Dec 2025 - 20 - Sirkabát - Þáttur 6Tue, 23 Dec 2025
- 19 - Heillaður af bókum – Einar Kári Jóhannsson ritstjóri
Í Bókapressunni fáum við innsýn inn í heim ritstjóra bóka í desember, en Einar Kári Jóhannsson hjá Benedikt bókaútgáfu er í viðtali við Erlu Hlynsdóttur. Fáar bækur hafa hreyft eins mikið við honum og bókin „Beðið eftir barbörunum“ – Waiting for the Barbarians eftir J. M. Coetzee.
Starfsfólk bókaútgáfa þarf að ganga í flest störf í desember. Bókaútgefendur eru eins og á hlaupabretti í desember við að halda öllu gangandi og tryggja að bækur berist í búðir, segir Einar meðal annars í viðtalinu.Þú getur tryggt þér áskirft að Gímaldinu hér
Thu, 18 Dec 2025 - 18 - Sirkabát - Þáttur 5Tue, 16 Dec 2025
- 17 - Jólabókaflóðið er afsprengi haftasamfélags
Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, segir jólavertíðina mikilvæga fyrir rithöfunda en bendir á í viðtali við Gímaldið að innviðirnir sem styðja við bókmenntir séu brothættir. Bókabúðir séu til að mynda fáar, sérstaklega á landsbyggðinni, og skólabókasöfn fái ekki nægt fé til að börn hafi jafnt aðgengi að nýjum bókum. Félagið hefur látið til sín taka í höfundarréttarmálum að undanförnu, en gervigreindarrisar vilja helst gleypa íslenskar bækur í sig án greiðslu. Þá hefur Samkeppniseftirlitið hafið formlega rannsókn á mögulegri misnotkun Storytel á markaðsráðandi stöðuð, í kjölfar kvörtunar félagsins.
Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Margréti um jólavertíð rithöfunda, baráttumálin og breytta veröld með tilkomu gervigreindar.Smelltu hér til að lesa ef þú ert áskrifandi
Mon, 15 Dec 2025 - 16 - Pakkað í vörn í Evrópuumræðunni – um bræðibeitur og áhrif þeirra
Úr pistli á Gímaldinu í dag: „Nú leggjum við Íslendingar upp í aðra Evrópuumræðu. Það var vissulega fyrirsjáanlegt að fyrstu skrefin í henni yrðu, líkt og í Bretlandi, stígin með gífuryrðum og hræðsluáróðri. Þetta hefur auðvitað bæði þann tilgang og þau áhrif að við sem viljum ræða Evrópumál, töpum þræðinum og glórunni, hoppum á reiðivagninn og förum að tala um eitthvað allt annað en ætluðum. Í stað þess að ræða kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu erum við skyndilega í þeirri stöðu að þurfa að verja sjálfan EES samninginn. Það samstarf er okkur bæði svo mikilvægt og sjálfsagt að við ættum ekki að þurfa að eyða tíma í að ræða það."
Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um bræðibeitur, sem var valið orð ársins hjá Oxford-háskóla og um Evrópuumræðuna, sem er til umfjöllunar í pistli Aðalheiðar á Gímaldinu í dag.Smelltu hér til að lesa ef þú ert áskrifandi
Mon, 15 Dec 2025 - 15 - Að skrifa barnabækur er hugsjónastarf
Auður Jónsdóttir tekur barna- og ungmennabækur til umfjöllunar í Bókapressunni að þessu sinni.
Að skrifa barnabækur er að vissu leyti hugsjónastarf því höfundur barnabókar fær talsvert minna fyrir hvert selt prentað eintak, einfaldlega vegna þess að barnabækur eru oft töluvert ódýrari en skáldsögur fyrir fullorðna. Þannig þarf fólk sem einbeittir sér að þessu mikilvæga – og í raun vanþakkláta – starfi að skrifa fyrir börn og unglinga sérstaklega á því að halda að samfélagið komi til móts við það og starf þess.
Í Bókapressuna mættu tveir kröftugir höfundar sem skrifað hafa fyrir yngri kynslóðir og getið sér gott orð, svo vægt sé til orða tekið. Þetta eru þau Arndís Þórarinsdóttir og Gunnar Theodór Eggertsson. Nú í ár eru þau bæði að gefa út ungmennabækur, hún er að gefa út bókina Sólgos og hann er að gefa út tvær bækur: Álfareiðina en líka Jólabókaorminn, ásamt eiginkonu sinni Yrsu Þöll Gylfadóttur.Lestu hér ef þú ert áskrifandi: Skortur á innsýn stjórnvalda – og stefnu
Smelltu hér til að gerast áskrifandi að Gímaldinu
Sat, 13 Dec 2025 - 14 - Fólk með heilabilun þarf stuðning en ekki útskúfun. Veðmálafyrirtæki færa sig upp á skaftið í íþróttunum.
Gímaldið hefur fjallað um heilabilunarsjúkdóma undanfarna daga. Fólk sem greinist ungt með heilabilun upplifir útskúfun af vinnumarkaði þegar það þyrfti í raun að fá skilning og rými til að átta sig á hlutunum.
Við fjöllum í dag um verðmálafyrirtæki sem ganga sífellt lengra í því að komast að í íþróttaheiminum. Eistneskt körfuboltafélag, frá bænum Keila í Eistlandi, sem atti kappi við Tindastól í vikunni heitir í raun fullu nafni Keila Coolbet. Nafni félagsins var breytt fyrir tveimur árum í takt við óskir stærsta stuðningsaðila félagsins.
Gímaldið er áskriftarmiðill, en hægt er að gerast áskrifandi hér.
Umsjón: Erla Hlynsdóttir og Eyrún Magnúsdóttir.Thu, 11 Dec 2025 - 13 - Krakkar eru ekki hræddir við neitt!
Skáldaparið Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Bragi Páll Sigurðarson eru bæði þekkt fyrir magnaðar skáldsögur, óhrædd við að beita rödd sinni. En þegar þau voru að lesa fyrir krakkana sína uppgötvuðu þau að krakkar eru ekki hræddir við neitt! Því byrjuðu þau að skrifa hrollvekjandi sögur fyrir krakka, svokallaðar hrekkjavökusögur sem komu út sem hljóðbækur hjá Storytel, fjórar bækur í fyrra og tvær í haust; en nú er ein hryllingssagan þeirra að koma út á prenti, gefin út af Sögum-útgáfu, sú fyrsta í barnabókaseríu.
Auður Jónsdóttir ræðir við Bergþóru og Braga í þættinum Bókapressan.Sat, 06 Dec 2025 - 12 - Sirkabát - Þáttur 4
Í nýlegri tilkynningu frá barna- og menntamálaráðherra kemur fram að „áætlað sé að eitt af hverjum tíu börnum á Íslandi búi við fátækt.“ Er þessi tala rétt?
Þáttastjórnendurnir Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson ræða við Kolbein H. Stefánsson prófessor við HÍ um rannsóknir og mælingar á fátækt.Thu, 04 Dec 2025 - 11 - Sirkabát - Þáttur 3
Landsmönnum hefur fjölgað hratt á undanförnum árum og mannfjöldaspá Hagstofu Íslands spáir því að landsmenn gætu slagað í hálfa milljón á eftir um það bil tvo áratugi. Hversu nákvæm er þessi spá? Á hvaða gögnum byggir hún? Og hvernig ber túlka hana? Þessum spurningum og fleirum munu þáttastjórnendur leitast við að svara í þriðja þætti Sirkabát.
Umsjón: Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson.Thu, 27 Nov 2025 - 10 - Ný fjármögnunarleið fyrir íbúðir, ráðherra íhugar nýja rannsóknarnefnd og vangaveltur um Ísland sem nýlendu
Lán eða ekki lán? – Ný leið til fjármögnunar er til skoðunar hjá Neytendastofu og Seðlabanka Íslands. Ráðherra dómsmála íhugar að setja á fót rannsóknarnefnd kvennamorða. Þetta kemur fram í aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda.
Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um efni Gímaldsins.Wed, 26 Nov 2025 - 9 - Andri Snær Magnason: Bók þarf mikilvægt erindi til að hafa skriðþungaTue, 25 Nov 2025
- 8 - Sigrar og áskoranir í málefnum fatlaðs fólks
Stór hópur fatlaðs fólks fær ekki, fötlunar sinnar vegna, rafræn skilríki og getur þar af leiðandi ekki fylgt sínum málum eftir, til að mynda þegar kemur að heilsufari, fjármálum eða menntun.
Þetta er staðan í dag þrátt fyrir að fjórir ráðherrar hafi vorið 2023 undirritað viljayfirlýsingu um þróun á lausnum að rafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk.
Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, segir í viðtali við Gímaldið að það sé miður að þessi mál séu ekki enn komin í lag. „Það er ofboðslega sorgleg staðreynd því þarna var í rauninni verið að búa til heim sem á að veita fólki meira öryggi, með þessum rafrænu skilríkjum, en það er á kostnað annarra,“ segir hún og vísar til þessa aðgengisskorts fatlaðs fólks að stafrænni þjónustu.
Sat, 22 Nov 2025 - 7 - Þolinmóðasti flokkur landsins bíður færis
Framsóknarflokkurinn hlaut verstu kosningu í sögu flokksins í síðustu alþingiskosningum og er frekar vansæll í sinni stjórnarandstöðu. Formannskosningar eru framundan og flokkurinn vinnur að því að finna sína fótfestu á pólitíska litrófinu að nýju.
Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um Framsóknarflokkinn, en Gímaldið birtir ítarlegar greiningu á stöðu flokksins og rýnir í möguleika hans til framtíðar með Ólafi Þ. Harðarsyni.
Hér geta áskrifendur lesið greiningu Gímaldsins á Framsóknarflokknum.Wed, 19 Nov 2025 - 6 - Sirkabát - Þáttur 2
Í öðrum þætti Sirkabát ræða Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson við þau Ara Klæng Jónsson, doktor í félags- og lýðfræði og Jóhönnu Gunnarsdóttur, forstöðumann fræðasviðs á fæðinga- og kvenlækningasviði.
Þýðir hækkandi meðalaldur kvenna þegar þær eignast fyrsta barn endilega að frjósemi minnki? Hvað þýðir það að frjósemi sé minni meðal erlenda kvenna en íslenskra? Þessum spurningum og fleirum er velt upp með sérfræðingunumMon, 17 Nov 2025 - 5 - Sirkabát - Þáttur 1
Í Sirkabát skoða Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson tölur úr fréttum og þjóðfélagsumræðunni og spyrja sig: Er umræðan rétt? Er hún röng? Eða svona sirkabát?
Í fyrsta þættinum skoða þeir tölur Hagstofu Íslands um frjósemi kvenna á Íslandi. Hvað þýðir það þegar Hagstofan segir að frjósemi var 1,56 árið 2024? Hvernig hefur þetta breyst með árunum? Hefur breytt samsetning þjóðarinnar undanfarinn áratug áhrif á þessa mælingu?
Tue, 11 Nov 2025 - 4 - Beðið eftir Guðlaugi og Sanna heimilislaus
Oddvitarnir og flokkarnir í borginni
Undirbúningur fyrir val á lista fyrir kosningar til sveitarstjórna er nú í fullum gangi hjá flokkunum. Það hefur gustað um marga oddvita í Reykjavíkurborg á kjörtímabilinu og þótt flestir þeirra vilji gefa kost á sér aftur er allur gangur á því hvort flokksfélagar þeirra vilji veita þeim brautargengi.Samkvæmt samantekt Gímaldsins má ætla að farnar verði fjölbreyttar leiðir við val á lista; leiðtogakjör, prófkjör, uppstilling og röðun í flokksráðum. Þessar leiðir og fleiri eru til umræðu í flokkunum.
Hjá Sjálfstæðisflokki bíða margir eftir ákvörðun Guðlaugs Þórs um hvort hann fer í leiðtogaslag við Hildi Björnsdóttur. Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti Sósíalista á ekki heima í sínum flokki og útilokar framboð fyrir hann en vill halda áfram í borginni. Því hefur verið velt upp hvort hún fari fram sem óháð, jafnvel með Samfylkingunni.
Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir rýna í stöðuna í borginni.
Sun, 09 Nov 2025
Podcasts similar to Gímaldið
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Orlofið Hafdís Arna Sigurðardóttir og Jasmín Guðrún Abu Libdeh
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Læknavarpið Læknablaðið
بودكاست عقلية Moneim
Snapped: Women Who Murder Oxygen
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Nauka To Lubię Tomasz Rożek
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه
Teboðið Birta Líf og Sunneva Einars
Spjallið Spjallið Podcast
The Rest Is Politics Goalhanger
Þetta helst RÚV
The Rest Is Politics: US Goalhanger
Spursmál Ritstjórn Morgunblaðsins
The Daily The New York Times
Pod Save America Pod Save America
Global News Podcast BBC World Service
Tvíhöfði tvihofdi
Flekaskil Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Dagur B. Eggertsson
Heimskviður RÚV
The Daily The New York Times One
Samstöðin Samstöðin
Sögur úr raunveruleikanum RÚV Hlaðvörp
Dateline NBC NBC News
Americast BBC News
Spegillinn RÚV
Rauða borðið Gunnar Smári Egilsson
Kveikur RÚV Hlaðvörp