Nach Genre filtern

Landspítali hlaðvarp

Landspítali hlaðvarp

Stefán Hrafn Hagalín

Viðtöl um ýmis málefni sem tengjast heilbrigðismálum, starfsemi og mannauði Landspítala

108 - Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander
0:00 / 0:00
1x
  • 108 - Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander

    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins að þessu sinni er Alexander Björn Gunnarsson, félagsráðgjafi í Transteymi fullorðinna á Landspítala. Alex ræðir við okkur um málefni og upplifun trans- og kynsegin fólks af barneignarferlinu og samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk. Þessi hópur mætir ýmsum áskorunum innan heilbrigðiskerfisins, sérstaklega þegar kemur að kynheilsu og frjósemi og heyrum við því góð ráð til að tryggja jafna topp þjónustu fyrir öll. Alex er sjálfur trans og fjölskyldufaðir og heyrum við frá hans upplifun af því að koma út sem trans og stofna síðar fjölskyldu. Komiði með!

    Mon, 9 Feb 2026 - 41min
  • 107 - LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir

    “Ljósmæður líta um öxl” er syrpa sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta eftir starfslok. Gestur þáttarins er Anna Eðvaldsdóttir ljósmóðir með meiru. Hún segir frá fjölbreyttum starfsferli sem endurspeglar brennandi áhuga á faginu en Anna hefur alltaf tekið nýjungum í starfi fagnandi, enda heyrum við sögur af bókaútgáfu og ráðgjafa-símalínu (sem stundum var misskilin um helgar). Það má með sanni segja að Anna, sem er iðulega kölluð Anna Ljósa, sé ljósmóðir fram í fingurgóma og þykir ekkert sjálfsagðara en að hafa aðstöðu til mæðraverndar á eigin heimili eða að stökkva yfir til nágrannakonu til þess að taka á móti barni í sparikjól milli rétta. Anna hefur staðið vaktina á Landspítala frá 1994 ásamt því að sinna fjölskyldum á þeirra heimili (oftar en ekki í Hafnarfirði) og geta samstarfskonur sem og skjólstæðingar staðfest að það er aldrei lognmolla þegar Anna Ljósa er á vakt.

    Tue, 6 May 2025 - 1h 26min
  • 106 - LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu

    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Eva Sigrún Guðjónsdóttir hlaðvarpsstjarna og kvenskörungur með meiru og er hún fyrsti gestur Legvarpsins sem mætir að hljóðnemanum í annað inn. Í fyrri þætti frá 2019 ræddi Eva um "mömmupressuna" en í þetta sinn beinist umræðan að því að ganga með og fæða tvíbura og komast í gegnum fyrstu mánuðina sem tvíburamamma og þriggja barna móðir. Eva segir frá því sem var frábrugðið varðandi líðan og eftirlit á meðgöngunni og fer vel yfir fæðingarsöguna þar sem tvíburi A var í sitjandi stöðu. Við heyrum skemmtilegar sögur að hætti Evu af hennar reynslu og bjargráðum til þess að komast í gegnum daginn með litla tvíbura. Rifinn árshátíðarkjóll, áhrifamikið trúnó í Vesturbæjarlaug, samningaviðræður við iðnaðarmenn í miðri gangsetningu, handsterk afreksíþróttakona og bananakippur á rúmgaflinum. Komiði með!

    Wed, 2 Apr 2025 - 1h 21min
  • 105 - Legvarp // Guðrún Guðbjartsdóttir ljósmóðir

    Legvörpur hefja árið á nýrri syrpu í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem talað verður við reynslubolta landsins Fyrst á svið er brosmilda hestakonan og Suðurnesjadrottningin Guðrún Guðbjartsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af lífi og ljósmæðrastörfum á Suðurnesjum. Ferill Guðrúnar á Ljósmæðravakt HSS spannar 47 ár og fer hún yfir hápunkta og skemmtilegar sögur í viðtali dagsins. Ljósmæðraáhuginn, námsárin, samblandan við einkalífið, uppáhalds ljósubarnið, sorgir og sigrar. Það er áhugavert að heyra frá breytingum og þróun á starfsháttum og menningu í kringum fæðingar á þessum tíma, og ekki síður magnað að heyra frá því sem ekki breytist í aldanna rás þegar ljósmæðralistin er annars vegar.

    Wed, 17 Jan 2024 - 56min
  • 104 - Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur

    Í þessum þætti fræða lungnalæknarnir Sif Hansdóttir og Gunnar Guðmundsson hlustendur um lungnaháþrýsting. Þau Sif og Gunnar leiða okkur í sannleikann um mismunandi orsakir lungnaháþrýstings og lífeðlisfræðina þar að baki. Hvernig er best að greina sjúkdóminn og hvaða meðferð er í boði? Allt þetta og margt fleira í þætti dagsins.

    Fri, 1 Nov 2024 - 59min
Weitere Folgen anzeigen